fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025

Obbossí úps og grjóthaltu kjafti

Ritstjórn DV
Laugardaginn 11. janúar 2020 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um 300 manns tóku þátt í að bjarga 39 ferðamönnum sem lentu í ógöngum í sleðaferð við Langjökul á þriðjudaginn. Þangað hafði ferðaþjónustufyrirtækið Mountaineers of Iceland dröslað vesalings fólkinu þrátt fyrir veðurviðvaranir. Þegar blaðamaður Fréttablaðsins leitaði eftir skýringum hjá fyrirtækinu var honum sagt að grjóthalda kjafti. Skömmu síðar mætti rekstrarstjóri fyrirtækisins í viðtal á Bylgjunni þar sem h ann bæði baðst afsökunar vegna ákvörðunar fyrirtækisins  og reyndi á sama tíma að verja hana. Því sko, þeir ætluðu að vera búnir með ferðina áður en veðrið versnaði. Því eins og allir vita eru veðurspár nákvæmar upp á mínútu. Síðan ætluðu þeir helst að sleppa því að kalla út björgunarsveitirnar því það ætti að sjálfsögðu að vera seinasta úrræðið. Á meðan máttu ferðamenn gera sér að góðu að hanga úti í frostinu fram yfir miðnætti. En engar áhyggjur, fyrirtækið hefur ákveðið að rannsaka sig sjálft, því það er alltaf farsæl lausn á svona vanda. Væri ekki réttara að stjórnvöld tæku til skoðunar að setja reglur um svona ferðir sem kveða á um fortakslausa skyldu til að aflýsa eða greina viðskiptavinum með fullnægjandi hætti fyrir þeirri áhættu sem þeir eru að taka, þegar veðurspáin blessaða hefur gefið fulla ástæðu til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Trump hefur lokað dyrunum fyrir flóttafólki – En hann gerir undantekningu fyrir þennan hóp hvíts fólks

Trump hefur lokað dyrunum fyrir flóttafólki – En hann gerir undantekningu fyrir þennan hóp hvíts fólks
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Beckham lætur í sér heyra á X-inu eftir að skotið var fast á Inter Miami

Beckham lætur í sér heyra á X-inu eftir að skotið var fast á Inter Miami
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Tölfræðin yfir síðustu þrjú tímabil – Stuðningsmönnum Arsenal svíður að sjá þetta

Tölfræðin yfir síðustu þrjú tímabil – Stuðningsmönnum Arsenal svíður að sjá þetta
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“

Telja að ungur maður hafi nauðgað á þriðja tug kálfa til dauða – „Þetta hljómar eins og brandari en þetta er dauðans alvara“