fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Mikilvægt að Íslendingar séu ekki með neitt vanmat

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 10. apríl 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta leggst ótrúlega vel í mig. Þetta eru virkilega mikilvægir leikir og mikilvægt að fá sem flest stig út úr þeim,“ sagði Arna Eiríksdóttir landsliðskona við 433.is fyrr í vikunni um komandi landsleiki.

Ísland mætir Úkraínu á þriðjudag og Englandi þarnæsta laugardag. Það er góður andi í hópnum. „Það er virkilega góð stemning, það er alltaf gaman að koma saman með landsliðinu.“

Leikirnir eru liðir í undankeppni HM 2027. Leikurinn við Úkraínu er afar mikilvægur, en búast má við að liðin berjist um þriðja sætið í undanriðinum allt til enda. Það getur skipt sköpum upp á framhaldið í umspili um sæti á mótinu.

„Þetta er mun betra lið en margir gera sér grein fyrir og mjög mikilvægt að ekkert vanmat sé í gangi,“ sagði Arna um Úkraínska liðið.

Sjálf var hún meidd gegn Spáni og Englandi í síðasta landsliðsverkefni en hefur nú náð sér. „Staðan á mér er góð, ég er búin að vera að æfa á fullu.“

Viðtalið í heild er í spilaranum hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arnar opinberar hóp sinn á morgun – Fyrri leikurinn utan glugga

Arnar opinberar hóp sinn á morgun – Fyrri leikurinn utan glugga
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þetta er eiginkona mannsins sem allt snýst um þessa stundina – Félagi hans daðraði mikið við hana á árum áður

Þetta er eiginkona mannsins sem allt snýst um þessa stundina – Félagi hans daðraði mikið við hana á árum áður
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tjáði sig um næstu skref – Orðaður við starf Guardiola

Tjáði sig um næstu skref – Orðaður við starf Guardiola
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Myndband: Þessi leiðinlega hegðun virðist færast í aukana á Íslandi – „Þetta er ótrúlega glórulaust“

Myndband: Þessi leiðinlega hegðun virðist færast í aukana á Íslandi – „Þetta er ótrúlega glórulaust“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda