Liverpool er að kaupa Takumi Minamino, sóknarmiðjumann Red Bull Salzburg fyrir 7,25 milljónir punda. Klásúla var í samningi hans.
Þessi sóknarsinnaði leikmaður frá Japan gat valið á milli þess að fara til Liverpool eða Manchester United.
Liverpool hefur tengsl við Salzburg og fyrrum leikmenn félagsins, Sadio Mane og Naby Keita voru áður hjá Salzburg.
Keita og Minamino eru miklir félagar og var það stærsta ástæða þess að hann valdi Liverpool, hann hefur slegið í gegn hjá Salzburg.
Hann vildi endurnýja kynni sín við Keita og telur að það muni hjálpa sér að aðlagast nýjum aðstæðum.