fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Gæti Manchester United fallið úr ensku úrvalsdeildinni?

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 8. október 2019 15:00

Mynd: GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er krísa hjá Manchester United, félagið er við fallsvæði ensku úrvalsdeildarinnar og Ole Gunnar Solskjær, virðist vera að keyra bílinn í þrot.

Solskjær er á sínu fyrsta heila tímabili, hann er að breyta stefnu félagsin og kúltur. Gary Neville kallar eftir því að Solskjær fái tíma. ,,Kaupstefna félagsins hefur verið vonlaus í mörg ár, þeir hafa verið út um allt. Stjórar með mismunandi stíl sem fá sína leikmenn inn, þeir verða að laga þetta. Kaupa rétta leikmenn, þeir fengu þrjár í sumar sem hafa gert það ágætt. Núna þarf fimm eða sex leikmenn,“ sagði Neville.

Solskjær tók við United í desember í fyrra, byrjaði vel en það hefur hallað undan fæti. Sam Allardyce, sá reyndi maður. Útilokar það ekki að United falli úr deildinni.

,,Það er ekki útilokað að United falli, þeir gætu lent í meiri vandræðum. Sjálfstraustið fer og meiðslin gætu haldið áfram að stríða þeim,“ sagði Allardyce en United er tveimur stigum frá fallsæti í dag.

,,Leikmenn verða að ná heilsu, það virðist gerast hægar þegar liði gengur illa. Paul Pogba vill fara.“

,,Það er ekki nógu mikið magn af mörkum í þessu United liði, það gæti orðið til vandræða. Þeir stefna í fallbaráttu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs