
Eldum rétt hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna frétta í gær, t.d á RÚV þess efnis að Eldum rétt hafi hafnað sáttaboði Eflingar varðandi meint vangoldin laun erlendra starfsmanna á vegum starfsmannaleigunnar Menn í vinnu. Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, sagði í viðtali við RÚV í gær að höfnun Eldum rétt á sáttaboði Eflingar hafi komið á óvart. Eldum rétt hefur sent á fjölmiðla afrit af tölvupóstsamskiptum sem sýna fram á að höfnunin átti ekki að koma á óvart. Tölvupóstsamskiptin sýna einnig fram á áframhaldandi vilja Eldum rétt til að leysa málið í sátt þó að ekki sé gengið að þessu sáttaboði.
Í tölvupósti hvetur Viðar framkvæmdastjóra Eldum rétt til að fallast á sáttaboðið, þá verði stefnan dregin til baka og Efling muni gefa út yfirlýsingu um að Eldum rétt hafi gert hreint fyrir sínum dyrum. Ekki þurfi að fylgja sögunni opinberlega hvaða fjárhæð hafi verið í spilinu. Efling muni síðan halda frekari yfirlýsingum í lágmarki.
Framkvæmdastjóri Eldum rétt segist í svari sínu ekki geta fengið að tilboðinu. Um tilboðið og sáttafund Eflingar og Eldum rétt á föstudaginn segir þetta í fréttatilkynningu frá Eldum rétt:
„Tilgangur fundarins var að reyna að leysa málið í sátt og samlyndi með Eflingu. Á fundinum lagði Efling fram tilboð, sem fól í sér að Eldum rétt ætti að greiða kr. 4.404.295 vegna málsins. Af þeirri fjárhæð voru 3 milljónir kr. í miskabætur. Efling tók skýrt fram að engin önnur lausn væri til að ljúka málinu.“
Eldum rétt tekur fram að ekki sé um sömu starfsmenn að ræða og hafi komið fram í fjölmiðlum hingað til. Segir Eldum rétt að stærsti hluti kröfunnar séu miskabætur vegna aðstæðrna og aðbúnaðar starfsmanna. Þær athugasemdir beinist hins vegar ekki að Eldum rétt:
„Stærsti hluti kröfunnar var um miskabætur vegna aðstæðna og aðbúnaðar starfsmannanna. Vert er að taka fram að ekki er um að ræða sömu starfsmenn Manna í vinnu ehf. og komið hafa fram í fjölmiðlum hingað til. Þar sem athugasemdir Eflingar um aðstæður starfsmannanna beindust ekki að starfsumhverfi eða aðstæðum hjá Eldum rétt, óskaði Eldum rétt eftir því að fá nánari upplýsingar þar um. Starfsmennirnir höfðu aðspurðir, staðfest við Eldum rétt að þeirra hagir væru í lagi. Efling hafnaði að veita frekari upplýsingar um aðstæður starfsmannanna.“
Eldum rétt telur að endurgreiðsla á því sem starfsmannaleigan dró frá launum starfsmannanna fæli í sér tvígreiðslu af hálfu Eldum rétt og ákvæði laga um kveðjuábyrgð nái ekki til slíkra fjárkrafna.
Vegna tilkynningar Eflingar frá því fyrr í gær vill Eldum rétt koma eftirfarandi atriðum á framfæri. Á föstudaginn átti framkvæmdastjóri Eldum rétt ehf. fund með framkvæmdastjóra og formanni Eflingar vegna þess dómsmáls sem hefur verið höfðað af fjórum rúmenskum einstaklingum gegn starfsmannaleigunni Menn í vinnu ehf. og Eldum rétt ehf.
Tilgangur fundarins var að reyna að leysa málið í sátt og samlyndi með Eflingu. Á fundinum lagði Efling fram tilboð, sem fól í sér að Eldum rétt ætti að greiða kr. 4.404.295 vegna málsins. Af þeirri fjárhæð voru 3 milljónir kr. í miskabætur. Efling tók skýrt fram að engin önnur lausn væri til að ljúka málinu.
Eldum rétt vill koma á framfæri að málið snýst í raun um hvort starfsmannaleigunni hafi verið heimilt að draga frá launum þessara einstaklinga kostnað vegna þjónustu, sem þeir nutu og fyrirframgreidd laun, sem óumdeilt er að þeir fengu. Endurgreiðsla á þessum fjárhæðum til einstaklinganna felur í sér tvígreiðslur til þeirra og ákvæði laga um keðjuábyrgð nær ekki til slíkra fjárkrafna. Stærsti hluti kröfunnar var um miskabætur vegna aðstæðna og aðbúnaðar starfsmannanna. Vert er að taka fram að ekki er um að ræða sömu starfsmenn Manna í vinnu ehf. og komið hafa fram í fjölmiðlum hingað til. Þar sem athugasemdir Eflingar um aðstæður starfsmannanna beindust ekki að starfsumhverfi eða aðstæðum hjá Eldum rétt, óskaði Eldum rétt eftir því að fá nánari upplýsingar þar um. Starfsmennirnir höfðu aðspurðir, staðfest við Eldum rétt að þeirra hagir væru í lagi. Efling hafnaði að veita frekari upplýsingar um aðstæður starfsmannanna. Engin gögn liggja því til grundvallar að starfsmenn sem unnu hjá Eldum rétt hafi verið látnir sæta ósæmilegri meðferð eða brotið gegn réttindum þeirra, eins og látið er liggja að í tilkynningu Eflingar. Efling hafnaði öllum frekari tillögum Eldum rétt til að ljúka málinu á fundinum.
Í lok dagsins sendi framkvæmdastjóri Eldum rétt tölvupóst til framkvæmdastjóra Eflingar, þar sem afstaða Eldum rétt var rakin og samningsvilji ítrekaður. Það sé einlægur vilji Eldum rétt að standa undir keðjuábyrgð sem notendafyrirtæki samkvæmt lögum um starfsmannaleigur beri. Tölvupósturinn er meðfylgjandi tilkynningunni, sem og samskiptin, sem fylgdu í kjölfarið.