fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Eyjan

Ísland og EFSA semja um rannsóknir á sýklalyfjaónæmi

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 4. júlí 2019 19:35

Jón Gíslason, forstjóri Matvælastofnunar og Bernhard Url, forstjóri EFSA undirrita samninginn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) og íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja samstarf í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. Verkefnið felur í sér rannsóknir á sýklalyfjaónæmi í bakteríum (E. coli) á Íslandi með heilraðgreiningu á erfðaefni þeirra.

Vonast er til að niðurstöðurnar varpi ljósi á uppruna baktería með getu til að mynda sýklalyfjaónæmi (ESBL/AmpC myndandi E. coli) og greina þátt matvæla, dýra, manna og umhverfis í útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.

„Nýleg viðhorfskönnun EFSA sýnir að helstu áhyggjur evrópskra neytenda eru sýklalyf í matvælum. Það gleður mig að EFSA og Matvælastofnun hafi ákveðið að sameina krafta sína í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi, sem er ein helsta ógn sem við stöndum frammi fyrir í dag. Styrkur EFSA, sem nemur 8,5 milljónum króna, mun styðja við vísindarannsóknir og vera hlekkur í sameiginlegu átaki gegn sýklalyfjaónæmi á heimsvísu.“ – Bernhard Url, forstjóri EFSA

Undirritun samnings vegna verkefnisins fór fram í dag í hátíðarsal Háskóla Íslands í tengslum við komu forstjóra EFSA, Bernhard Url, til fundar ráðgjafahóps EFSA á Íslandi (Advisory Forum). Matvælastofnun, í samvinnu við Keldur, Matís og sýklafræðideild Landspítalans, hefur unnið að undirbúningi að samstarfsverkefninu með EFSA og DTU Fødevareinstituttet í Danmörku. Verkefnið er unnið undir formerkjum “One Health”, sem er alþjóðleg stefna ætluð auknu þverfaglegu samstarfi og samskiptum á öllum sviðum heilbrigðisþjónustu fyrir menn, dýr og fyrir umhverfið.

Verkefnið er partur af röð samstarfsverkefna EFSA á sviði matvælaöryggis og er megin markmið þeirra að auka þekkingu í hverju landi ásamt því að auka samvinnu milli landa innan Evrópu. Verkefnið er einnig liður í áætlun stjórnvalda til að auka fjármagn til rannsókna og sóknar gegn sýklalyfjaónæmi og verður styrkt að hluta af EFSA.

Sýklalyfjaónæmi er ein stærsta ógn við lýðheilsu í heiminum í dag og hafa alþjóðastofnanir hvatt aðildarþjóðir sínar til að efla rannsóknir til að stemma stigu við þessari ógn. Niðurstöðurnar munu nýtast til að útbúa viðbragðsáætlanir til að viðhalda lágu hlutfalli sýklalyfjaónæmis eða að hægja á þróun/aukningu ónæmis eins og hægt er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Fjármálaráð gefur verkum ríkisstjórnarinnar falleinkunn

Orðið á götunni: Fjármálaráð gefur verkum ríkisstjórnarinnar falleinkunn
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Misheppnuð tilraun snýst um prinsipp

Þorsteinn Pálsson skrifar: Misheppnuð tilraun snýst um prinsipp
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund bætir enn við fylgi sitt og fylgi Katrínar minnkar

Halla Hrund bætir enn við fylgi sitt og fylgi Katrínar minnkar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Stórskaðlegur og bannaður nagladekkjadans dunar áfram – Tugir deyja, ekkert mál?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Stórskaðlegur og bannaður nagladekkjadans dunar áfram – Tugir deyja, ekkert mál?