fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Fréttir

Frjósemi íslenskra kvenna aldrei lægri

Árið 2016 var frjósemi íslenskra kvenna 1,75 börn á ævi hverrar konu

Kristín Clausen
Föstudaginn 7. apríl 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frjósemi kvenna á Íslandi er minna en nokkru sinni fyrr og fæddust færri börn í fyrra en árið á undan. Meðalaldur frumbyrja heldur áfram að hækka og var 27,7 ár í fyrra. Algengast er á Íslandi að barn fæðist utan hjónabands miðað við önnur lönd í Evrópu.

Færri börn fæddust í fyrra

Árið 2016 fæddust 4.034 börn á Íslandi, sem er fækkun frá árinu 2015 þegar 4.129 börn fæddust. Alls fæddust 2.042 drengir og 1.992 stúlkur, en það jafngildir 1.025 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum.

Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið.

Næstlægsta frjósemi

Árið 2016 var frjósemi íslenskra kvenna 1,75 börn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei farið lægra frá því að mælingar hófust árið 1853. Árið 2015 var frjósemi 1,81 en það er næstlægsta frjósemi sem mælst hefur hér á landi. Undanfarinn áratug hefur frjósemi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu.

Mynd: Hagstofan

Frjósemi á Íslandi hefur verið með því mesta sem þekkist í Evrópu á síðustu árum. Árið 2015 var frjósemi yfir tveimur í Frakklandi (2,14) en þess utan voru öll löndin undir tveimur. Þá var frjósemi að meðaltali 1,58 í 28 löndum Evrópusambandsins árið 2015. Síðustu ár hefur fæðingartíðni innan álfunnar verið lægst í löndum Suður-Evrópu og er árið 2015 engin undantekning, en fæðingartíðni var 1,31 í Portúgal, 1,32 á Kýpur og 1,33 á Grikklandi.

Flest börn fæðast í Reykjavík

Eins og við má búast voru flest nýfædd börn í fyrra skrásett með lögheimili í Reykjavík (1.555), í Kópavogi (470) og í Hafnarfirði (363). Flestar fæðingar voru í september (403) en fæstar í desember (283). Árið 2015 fæddust flest börn í júlímánuði (385) og fæst í desember (297).

Mynd: Hagstofan

Meðalaldur mæðra hefur hækkað

Meðalaldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn síðar á ævinni en áður var. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldurinn hækkað og var 27,7 ár í fyrra. Algengasti barneignaaldurinn er 25–29 ára.

Mynd: Hagstofan

Á þessu aldursbili fæddust 109 börn á hverjar 1.000 konur í fyrra. Fæðingartíðni mæðra undir tvítugu í fyrra var 6,5 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt miðað við þegar hún fór hæst á árabilinu 1961–1965, en þá fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu. Til samanburðar var meðalaldur frumbyrja 28,9 ár í 28 löndum Evrópusambandsins árið 2015, yngstar voru frumbyrjur í Búlgaríu (26,0 ára) en elstar á Ítalíu (30,8 ára).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Er þetta versta stefnumót sögunnar? Frábært kvöld þar til hún þurfti að fara á klósettið

Er þetta versta stefnumót sögunnar? Frábært kvöld þar til hún þurfti að fara á klósettið
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Mörg þúsund flugvélar hafa orðið fyrir alvarlegri truflun – Böndin beinast að Rússlandi

Mörg þúsund flugvélar hafa orðið fyrir alvarlegri truflun – Böndin beinast að Rússlandi
Fréttir
Í gær

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun
Fréttir
Í gær

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda