fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Foreldrar öskruðu á barnastjörnuna Kolbein: Þetta fékk hann að heyra í leikjum

433
Föstudaginn 7. júní 2019 19:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hlaðvarpsþátturinn, 90 mínútur heldur áfram á fullu fjöri en um er að ræða þátt sem Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is stýrir.

Þátturinn hefur notið mikilla vinsælda en afar áhugaverðir gestir hafa komið í þáttinn.

Gestur þáttarins að þessu sinni er Kolbeinn Sigþórsson sem er einn allra besti knattspyrnumaður sem Ísland hefur átt, þá sérstaklega þegar hann hefur klæðst treyju landsliðsins.

Kolbeinn var algjör barnastjarna og var strax ljóst að hann hefði hæfileika sem ekki margir voru með. Hann vakti fyrst athygli hjá Víkingi Reykjavík.

Á hans yngri árum var Kolbeinn í raun stjarna íslenska boltanns og þótti það heiður að spila gegn honum á mótum fyrir yngri flokka.

Kolbeinn fór yfir þennan tíma í þættinum en hann talar um minningarnar sem þær bestu á ævinni.

,,Þetta var pínu þannig. Það voru miklar væntingar gerðar til manns eftir því sem maður vann fleiri mót og skoraði fleiri mörk í yngri flokkunum,“ sagði Kolbeinn.

,,Maður fann það alveg að það var komin auka pressa á mig að skora tíu mörk í leik, það voru settir þrír leikmenn á mig í hverjum leik stundum.“

,,Foreldrar að öskra inná: ‘tæklið hann, út með hann’ og eitthvað svona. Maður fann það alveg.“

,,Svo auðvitað Shell mótið. Ég fór þrisvar þangað, á fyrsta árinu spilaði ég upp fyrir mig og var markakóngur þá. Eftir það þá byrjaði þetta almennilega að rúlla hjá mér, fótboltinn.“

,,Þetta eru mínar bestu minningar, Shell mótið, Essó mótið og öll þessi yngri fótboltamót.“

Stjórnandi þáttarins, Hörður Snævar Jónsson, lék gegn Kolbeini á þessum tíma og áttust þeir við í úrslitaleik.

Hörður lék með liði Breiðabliks sem tapaði gegn Víkingum í úrslitum. Kolbeinn skoraði þó aðeins eitt mark í þeim leik.

,,Ég man vel eftir þessum leik, það var mikil spenna fyrir honum. Þetta eru minningar sem maður gleymir aldrei.“

,,Þegar maður lítur til baka þá er geggjað að upplifa svona góða æsku þar sem maður var í sviðsljósinu líka þá. Það er gaman að því. Það hefur alltaf verið smá auka pressa á mér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir frá kvíða sem gerði henni lífið leitt – Var föst á baðherbergisgólfinu og fór að missa hárið

Segir frá kvíða sem gerði henni lífið leitt – Var föst á baðherbergisgólfinu og fór að missa hárið
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Carragher varar Arsenal við þessum leikmanni – Segir að hann muni ráða úrslitum frekar en Haaland

Carragher varar Arsenal við þessum leikmanni – Segir að hann muni ráða úrslitum frekar en Haaland
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vakti mikla athygli á Times Square um helgina – Úlpan kostar meira en 700 þúsund krónur

Vakti mikla athygli á Times Square um helgina – Úlpan kostar meira en 700 þúsund krónur
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Beckham og Messi að sækja aðra stórstjörnu

Beckham og Messi að sækja aðra stórstjörnu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Segir að allir leikmenn elski Salah

Segir að allir leikmenn elski Salah