Nýbakaða móðirin Abby Gilmore birti fallega mynd af sér og nýfædda barni sínu á samfélagsmiðlum, en hún er með rúmlega hundrað þúsund fylgjendur á Instagram.
Abby notaði barnið til að hylja brjóst sín er hún kom úr sturtu og eru fjölmargir búnir að smella hjarta við myndina.
Hins vegar eru sumir sannfærðir um að Abby hafi óvart sýnt geirvörtu sína á myndinni, þökk sé hæl litla barnsins. Hann er staðsettur á þann veg að við fyrstu sýn virðist vissulega vera sem svo að sjáist í brjóst móðurinnar. En af hverju ætti það svo sem að vera eitthvað tiltökumál?
Hér fyrir neðan má sjá myndina umdeildu: