fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
433Sport

Dagný fékk áfall þegar hún komst að því að hún væri ólétt

433
Þriðjudaginn 14. maí 2019 09:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagný Brynjarsdóttir, ein besta knattspyrnukona Íslands er mætt aftur í atvinnumennsku og byrjuð, að spila á fullu með Portland Thorns. Sindri Sverrisson, blaðamaður á Morgunblaðinu skrifar um hana í dag.

Dagný missti af stærstum hluta síðasta árs í fótboltanum eftir að hafa orðið ófrísk og síðan eignast strák.

,,Það er gam­an að sjá hversu fljót Dagný Brynj­ars­dótt­ir hef­ur verið að stimpla sig aft­ur inn í lið Or­lando Pri­de í Banda­ríkj­un­um. Þegar ég tók viðtal við hana í fe­brú­ar talaði hún um að geta von­andi farið að spila 90 mín­útna leiki í júní, en verk­ir í mjaðmagrind höfðu þá tafið fyr­ir henni á leið aft­ur á fót­bolta­völl­inn eft­ir að hafa átt barn í fyrra,“ skrifaði Sindri í Morgunblaðið í dag.

,,Dagný var því á und­an áætl­un þegar hún lék um helg­ina sinn fyrsta 90 mín­útna leik síðan haustið 2017. Hún gerði gott bet­ur og skoraði í 3:1-sigri. „Því miður“ er enn lang­ur tími fram að næsta móts­leik ís­lenska landsliðsins, þegar undan­keppni EM hefst í lok ág­úst, en það er gott að sjá einn lyk­il­leik­manna liðsins vera að snúa aft­ur.“

Ísland rétt missti af sæti á HM, liðið missteig sig undir lokin þegar Dagný var fjarverandi. Hún segir það hafa verið áfall að komast að þungun sinni.

,,Ég segi „því miður“ vegna þess að auðvitað hefði ég viljað að næstu leik­ir ís­lenska liðsins væru leik­ir á HM í Frakklandi í júní. Ég sá viðtal við Dag­nýju fyr­ir helgi þar sem hún lýsti því ein­mitt hví­lík von­brigði það hefðu verið að kom­ast ekki á HM. Að það hefði í fyrstu hrein­lega verið áfall að kom­ast að því að hún ætti von á barni, því Ísland hefði átt svo góða mögu­leika á að kom­ast á HM og að hún tryði því enn í dag að liðið hefði kom­ist þangað ef hún hefði verið með. Hún gat þess þó að vissu­lega væri hún í skýj­un­um í dag, með Brynj­ar litla á kant­in­um.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Slæm tíðindi fyrir Vestra

Slæm tíðindi fyrir Vestra
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?

Er þetta sterk vísbending um að hann verði sá fyrsti sem Slot fær til Liverpool?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hannes ræðir förina í brúðkaup Gylfa Þórs og allt fjaðrafokið í kjölfarið – „Þess vegna fannst mér svo brotið á minni réttlætiskennd“

Hannes ræðir förina í brúðkaup Gylfa Þórs og allt fjaðrafokið í kjölfarið – „Þess vegna fannst mér svo brotið á minni réttlætiskennd“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þetta verður stærsta verkefni Slot hjá Liverpool

Þetta verður stærsta verkefni Slot hjá Liverpool
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ten Hag um Rashford: ,,Ég vorkenni honum“

Ten Hag um Rashford: ,,Ég vorkenni honum“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Skelfilegt ofbeldi í Bandaríkjunum: Var stunginn og fluttur á sjúkrahús – Telja að árásarmaðurinn sé fundinn

Skelfilegt ofbeldi í Bandaríkjunum: Var stunginn og fluttur á sjúkrahús – Telja að árásarmaðurinn sé fundinn
433Sport
Í gær

Heppinn að vera með meðvitund eftir ‘árásina’ í gær – Sjáðu óhugnanlegt myndband

Heppinn að vera með meðvitund eftir ‘árásina’ í gær – Sjáðu óhugnanlegt myndband
433Sport
Í gær

Ekki of vinsæll í Barcelona eftir valið – ‘Sá besti’ kemst ekki í liðið

Ekki of vinsæll í Barcelona eftir valið – ‘Sá besti’ kemst ekki í liðið