fbpx
Laugardagur 13.september 2025
FókusKynning

Bjarkarblóm: Spennandi blómadagar framundan

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 11. febrúar 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin vinsæla blómaverslun Bjarkarblóm hefur nú fært sig um set innan Smáralindar í Kópavogi og er nú staðsett fremst við nýja innganginn sem tekinn var í notkun fyrir síðustu jól. Eigendur verslunarinnar eru nú tveir, þær Elva Björk Jónatansdóttir og dóttir hennar, Ragnhildur Rós Kristjánsdóttir, sem hefur verið í starfsþjálfun sem blómaskreytir undanfarin tvö ár.

Þær Elva og Ragnhildur hafa mikilvægan boðskap fram að færa í tilefni þeirra rómantísku daga sem nú eru í vændum:

„Nú eru framundan spennandi blómadagar, Valentínusardagurinn, þriðjudaginn 14. febrúar, og konudagurinn, sunnudaginn á eftir, 19. febrúar. Þessir dagar snúast jú um kærleika og ást og hvað er meira viðeigandi en að gleðja þann sem þér þykir vænt um með blómum. Valentínusardagurinn er tileinkaður vináttu og ást og hvatning til að gleðja alla sem þér þykir vænt um. Konudagurinn snýst svo eingöngu um okkur konurnar og mikið um að karlmenn gleðji ekki eingöngu eiginkonurnar heldur líka dætur og mæður.“

Mynd: Thorri

Bjarkarblóm selur allar gerðir skreytinga og fallega gjafavöru á góðu verði. Starfsfólk búðarinnar er með margra ára reynslu og er verslunin þekkt fyrir faglega þjónustu.

Boðið er upp á allar gerðir blómvanda hjá Bjarkarblómum. „Þar sem rósir, eldliljur, gerberur og Chrysanthemum (krýsantema) eru ræktaðar á Íslandi eru þær tegundir til allt árið um kring. Önnur blóm eins og túlípanar, gladíólur, sólblóm og fleiri eru hins vegar árstíðabundin blóm,“ segir Eva Björk, en verslunin leggur áherslu á persónulega og faglega ráðgjöf:

„Alltaf er hægt að bera fram óskir hjá okkur um að útbúa eitthvað fallegt, sem hæfir tilefninu hverju sinni, og við veljum það besta sem til er og sníðum eftir verðhugmynd viðskiptavinarins. Bjarkarblóm er með úrval af ferskum blómvöndum auk þess sem boðið er upp á persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf fyrir hvern og einn.“

Það er sannarlega tilefni til að bregða sér Bjarkarblóm í Smáralind á næstunni því auk fjölbreytts úrvals af fallegum blómum á góðu verði er sértilboð í tilefni Valentínusardags og konudags: Fimm stykki af hvítum og rauðum eldliljum á aðeins 3.490 krónur.

Sem fyrr segir er Bjarkarblóm staðsett við nýja innganginn í Smáralind í Kópavogi. Rétt er að minna á vefverslun Bjarkarblóma, bjarkarblom.is, auk þess sem Bjarkarblóm er á Facebook. Hægt er að hafa samband við Bjarkarblóm í síma 578-5075 eða með því að senda póst á netfangið bjarkarblom@bjarkarblom.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
19.02.2024

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri