fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
433Sport

Hjörvar sendi Erdogan skilaboð: Þetta vill hann láta laga í Tyrklandi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. mars 2019 08:10

Hjörvar Hafliðason.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjörvar Hafliðason eða Dr. Football eins og hann er gjarnan kallaður er staddur með liði KA í Tyrklandi þessa stundina.

Lið KA undirbýr sig fyrir komandi verkefni í Pepsi-deild karla en deildin hefst eftir aðeins mánuð.

Hjörvar er eins og margir vita fyrrum knattspyrnumaður og er með KA þar sem hann þjálfar markverði liðsins í ferðinni.

Hann setti inn færslu á Twitter í gær þar sem hann sendi Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands skilaboð.

Hjörvar kemst ekki á vefsíðuna frægu Wikipedia í Tyrklandi en lokað var fyrir aðgang að síðunni í apríl árið 2017.

Hjörvar hefur þurft að vera án Wikipedia undanfarna fjóra daga og saknar hann að geta skoðað allt á milli himinns og jarðar á síðunni.

,,Heldurðu að þú munir einhvern tímann opna fyrir aðgang að Wikipedia? Það eru liðnir fjórir dagar og ég sakna þess að geta skoðað markamet knattspyrnumanna og fundið skemmtilegar staðreyndir um Metallica,“ skrifaði Hjörvar og stimplaði færsluna á Erdogan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Sveindís Jane: „Maður var eiginlega orðlaus yfir þessu“

Sveindís Jane: „Maður var eiginlega orðlaus yfir þessu“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Þurfa að borga 172 milljónir punda til að forðast fall

Þurfa að borga 172 milljónir punda til að forðast fall
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum
Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Pogba grínaðist í blaðamönnum með öruggt sæti í landsliðinu

Pogba grínaðist í blaðamönnum með öruggt sæti í landsliðinu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

KSÍ vísar gagnrýnisröddum á bug – „Allt væl um þetta, okkur gæti ekki staðið meira á sama“

KSÍ vísar gagnrýnisröddum á bug – „Allt væl um þetta, okkur gæti ekki staðið meira á sama“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ræddu stressið sem háði liðinu – „Maður þarf líka að geta stjórnað því“

Ræddu stressið sem háði liðinu – „Maður þarf líka að geta stjórnað því“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Grétu er þeir minntust Jota og bróður hans

Grétu er þeir minntust Jota og bróður hans