Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mun taka við lyklunum í dómsmálaráðuneytinu. Frá því var greint í gær. Þórdís Kolbrún var á forsíðu Fréttablaðsins í morgun vegna málsins. Hefur myndin vakið nokkra athygli og benti tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson á að nokkur líkindi væri með Þórdísi Kolbrúnu og Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins. Eyþór birtir mynd af Bjarna við hlið forsíðunnar og segir:
„Enn eitt dulargervið!!“
Dagbjartur Willardsson skrifar innlegg á síðu Eyþórs og segir: „Hahaha. Konan mín hélt fyrst þegar hún sá blaðið að þetta væri Bjarni.“