Lögregla telur það nánast öruggt að Birna Brjánsdóttur eigi skóparið sem fannst í Hafnarfirði í gær. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir í samtali við DV:
„Við höfum talað við einstakling sem er góður vinur hennar. Hann segir hana eiga skóna. Við göngum því út frá því að þetta séu hennar skór.“
Skipulögð leit að Birnu Brjánsdóttur, við höfnina í Hafnarfirði hjá birgðastöð Atlantsolíu hófst klukkan 10:30 í morgun og hefur hún ekki borið árangur. Nýjustu vendingar í leitinni eru að lögregla hefur lagt hald á rauða Kia Rio bifreið í tengslum við rannsókn málsins. Ekki er þó öruggt að um sama bíl sé að ræða og sést á upptökum aka Laugaveginn á svipuðum tíma og Birna hvarf.
„Við erum að vinna okkur niður langan lista“, þetta eru 126 bílar og við gætum lagt hald á fleiri en einn og fleiri en tvö. Ég get staðfest við þig að í tengslum við rannsóknina höfum við lagt hald á þennan bíl.“