„Facebook var að henda mér út af sér í 30 daga vegna þessa vídjós,“ skrifar Margrét Erla Maack, fjölmiðla- og kabarettkona, á Twitter-síðu sinni. Margrét birtir svo myndbandið sem gerði það að verkum að henni var úthýst af Facebook og sjá má hér fyrir neðan.
Síðustu misseri hefur Margrét Erla gert það gott í svokölluðum burlesque-dans sem getur verið æði erótískur. Myndbandið sem hún birtir er þó ekki af henni heldur öðrum skemmtikrafti á kabarettkvöldi.
Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Margréti er hent út af Facebook, líkt og DV greindi frá í fyrra. Í viðtali við DV fyrir tveimur árum sagði Margrét Erla farir sínar ekki sléttar af samskiptum við Facebook. „Ég er að reyna að safna fólki á síðuna, því það hjálpar mér að bóka gigg, og ætlaði þess vegna að kaupa Facebook-auglýsingu. Mér var hins vegar bannað að gera það þar sem myndin af mér þótti sýna of mikið hold og vera of klámfengin. Mér finnst myndin bara listræn og mjög falleg.“
Facebook var að henda mér út af sér í 30 daga vegna þessa vídjós. pic.twitter.com/slEQgzEiO0
— margrét erla maack (@mokkilitli) February 25, 2019