

Tupperware-ílátin eru gríðarlega vinsæl og hafa eflaust margir Íslendingar lent í svokölluðum Tupperware-partíum í gegnum tíðina. Ástæða vinsælda ílátanna er hve góð þau eru, en hve mikið vitum við í raun um þau? Hér eru níu hlutir sem þú vissir örugglega ekki um Tupperware.
Earl Tupper rak garðyrkjufyrirtæki í kreppunni miklu. Þegar það fór á hausinn fékk hann starf í plastverksmiðju. Hins vegar vissu færri að það leyndist uppfinningamaður í Earl og brátt fór hann að leika sér með plastmót heima við og fann upp á Tupperware. Hann stofnaði síðan fyrirtæki í kringum Tupperware árið 1938.

Innblásturinn fyrir lokið sérstaka var einfaldlega málningardós, en lokið hefur innbyggt, lofttæmt innsigli til að halda mat ferskum.

Fyrsta varan sem kom á markað undir merkjum Tupperware var Wonderbowl, eða undraskálin. Hún var búin ropinnsiglinu svokallaða, en það var kallað því nafni því það var líkt og lokið ropaði þegar íláti var lokað.
Neytendur tóku ekki vel á móti Tupperware í fyrstu. Þeir skildu ekki hönnun loksins og enginn keypti vörurnar í verslunum. Þá voru Tupperware-partíin kynnt til sögunnar og ekki þarf að fjölyrða um framhaldið.

Fyrsta Tupperware-partíið var haldið árið 1949 af einstæðu móðurinni Brownie Wise í Detroit í Bandaríkjunum. Tveimur árum síðar voru teitin orðin svo vinsæl að Earl Tupper ákvað að fjarlægja ílátin úr verslunum og einbeita sér eingöngu að teitunum.

Tupperware er ein af merkilegustu uppfinningum 20. aldarinnar að mati heimsmetabókar Guinness. Meðal annarra uppfinninga á listanum eru töfrateningurinn og vasadiskóið.
Það fer kannski lítið fyrir Tupperware-partíum en þau eru haldin á 1.4 sekúndna fresti. Til dæmis eru rúmlega fimm hundruð þúsund slík teiti haldin í Frakklandi á ári hverju.

Tekjur Tupperware-fyrirtækisins árið 2014 voru 2,61 milljarður dollara, þannig að það má með sanni segja að Tupperware-teitin hafi skilað sínu.
Á síðum eins og eBay og Etsy er að finna eldgamalt Tupperware-dót sem selt er fyrir góðan pening, enda endast ílátin nánast endalaust. Þannig að ef að þú átt gamalt Tupperware-góss í skápnum gæti verið kominn tími til að selja það.
