fbpx
Laugardagur 04.maí 2024

Halldór hættir hjá Hörpu

Stjórnar þátttöku Noregs sem verður heiðursgestur bókasýningarinnar í Frankfurt árið 2019

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 21. desember 2016 15:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Guðmundsson lætur af störfum sem forstjóri Hörpu þann 1. mars næstkomandi og mun um leið taka við nýrri stöðu erlendis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum Hörpu. Halldór var ráðinn forstjóri Hörpu í maí 2012, ári eftir að húsið var opnað.

„Mjög margt hefur áunnist í starfsemi hússins á þeim tíma og gestum Hörpu hefur fjölgað jafnt og þétt. Stefnir í að þeir verði hátt í tvær milljónir á árinu 2016 og viðburðir vel á annað þúsund,“ segir í tilkynningunni en þar segir einnig að Halldór hafi verið ráðinn af norsku bókmenntamiðstöðinni Norla til að stjórna þátttöku Noregs sem verður heiðursgestur bókasýningarinnar í Frankfurt árið 2019, en hann stýrði þátttöku Íslands á sömu bókasýningu árið 2011 þegar íslenskar bókmenntir voru í öndvegi.

„Halldór segir að mikil eftirsjá sé fyrir hann að Hörpu og því frábæra starfsfólki sem þar vinnur, en um leið sé honum mikill heiður sýndur með því að vera boðið að annast svo mikilvægt bókmenntakynningarverkefni fyrir annað land, og bókmenntir og bókaútgáfa séu það svið sem hann hefur helgað mestan hluta starfsævi sinnar.
Stjórn Hörpu þakkar Halldóri fyrir gott og óeigingjarnt starf í þágu hússins og óskar honum alls hins besta á nýjum vettvangi. Starf forstjóra Hörpu verður auglýst á nýju ári.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Kyn læknisins þíns getur haft sérstaka þýðingu

Kyn læknisins þíns getur haft sérstaka þýðingu
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Besta deildin: Tvenna Andra Rúnars dugði ekki til gegn FH

Besta deildin: Tvenna Andra Rúnars dugði ekki til gegn FH
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ten Hag sannfærður um að hann verði áfram við stjórnvölin – ,,Ég gefst ekki upp“

Ten Hag sannfærður um að hann verði áfram við stjórnvölin – ,,Ég gefst ekki upp“
EyjanFastir pennar
Fyrir 7 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Auðlindir í auðmannaþágu

Sigmundur Ernir skrifar: Auðlindir í auðmannaþágu
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ten Hag staðfestir að hann hafi ekki fengið sinn mann – ,,Ef þú vilt spila eins og Ajax þá þarftu svona leikmann“

Ten Hag staðfestir að hann hafi ekki fengið sinn mann – ,,Ef þú vilt spila eins og Ajax þá þarftu svona leikmann“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sannfærð þrátt fyrir tvö framhjáhöld og hleypir stórstjörnunni aftur heim: Eignaðist tvö börn með annarri konu – Grátbað um fyrirgefningu

Sannfærð þrátt fyrir tvö framhjáhöld og hleypir stórstjörnunni aftur heim: Eignaðist tvö börn með annarri konu – Grátbað um fyrirgefningu
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrirliði Real Madrid yfirgefur félagið – Vill aðeins semja í einu landi

Fyrirliði Real Madrid yfirgefur félagið – Vill aðeins semja í einu landi
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Skoðanakönnun: Hver stóð sig best í kappræðunum á RÚV?

Skoðanakönnun: Hver stóð sig best í kappræðunum á RÚV?