Flest viljum við bæta mataræði okkar og draga úr sykurneyslu. En maður verður stundum að leyfa sér eitthvað og þá er best að fá sér góðgæti sem er bæði bragðgott og hollt.
Þurrkað Mango snakk, hnetusmjör og Orkupokinn frá H-Berg eru allt heilsusamlegt góðgæti sem inniheldur engan viðbættan sykur.
Piparmöndlurnar frá H-Berg slógu rækilega í gegn þegar þær komu á markaðinn fyrir tveimur árum og má segja að sannkallað piparmöndluæði hafi geisað síðan þá.
Ekki minnkuðu vinsældirnar þegar möndlur með karamellukremi og sjávarsalti bættust við, lostæti sem sprengir alla skala hjá bragðlaukunum.
Vörurnar frá H-Berg eru til sölu í öllum matvöruverslunum. Nánari upplýsingar eru á www.hberg.is.
Þessar vörur eru ekki bara góðar einar og sér sem nasl heldur henta þær líka í bakstur og gómsæta rétti.
Sjá nánar á uppskriftasíðu H-Berg