fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Sport

Áfengi og dóp eftir misnotkun þjálfara

Knattspyrnumenn stíga fram og lýsa afleiðingum kynferðislegrar misnotkunar af hálfu þjálfara sinna

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 26. nóvember 2016 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hann sagðist ætla að drepa móður mína, föður minn og tvo bræður ef ég segði eitt orð um þetta,“ segir Paul Stewart, fyrrverandi landsliðsmaður Englands í fótbolta. Paul er einn nokkurra fyrrverandi knattspyrnumanna sem undanfarna daga hafa stigið fram og lýst því hvernig þeir voru misnotaðir af þjálfurum sínum í barnæsku.

Alræmdur barnaníðingur

Fyrstur til að stíga fram var Andy Woodward sem í dag er 43 ára. Woodward þótti afar efnilegur á sínum tíma en hann var aðeins ellefu ára þegar þáverandi þjálfari hans hjá Crewe, Barry Bennell, misnotaði hann. Barry þessi var dæmdur í níu ára fangelsi árið 1998 fyrir að misnota drengi á aldrinum 9 til 15 ára. Andy var einn þeirra.
Í viðtali við breska blaðið The Guardian í síðustu viku sagðist hann telja að frásögn hans væri aðeins toppurinn á ísjakanum; fórnarlömbin væru að líkindum miklu fleiri.

Paul Stewart lék á sínum tíma þrjá landsleiki fyrir England. Hann opnaði sig í viðtali við Mirror.
Misnotkun Paul Stewart lék á sínum tíma þrjá landsleiki fyrir England. Hann opnaði sig í viðtali við Mirror.

Gerði sér upp meiðsli

Woodward lagði skóna á hilluna aðeins 29 ára gamall, eftir að hafa leikið með liðum á borð við Sheffield United, Bury og Halifax í neðri deildum Englands. Woodward sagði sjálfur að hann hefði hætt í fótbolta því hann þjáðist af kvíða og þunglyndi sem hann reki til misnotkunarinnar. Rifjaði hann upp að eitt sinn hafi hann gert sér upp meiðsli til að fá skiptingu í miðjum leik því hann fékk skyndilegt kvíðakast. Eftir að hann hætti í fótbolta hefur hann glímt við sjálfsvígshugsanir og sektarkennd, en hann neitar að þjást lengur. „Hversu margir eru þarna úti í sömu sporum? Ég er að tala um hundruð börn sem Barry Bennell handvaldi fyrir fjölmörg fótboltalið. Þetta eru einstaklingar sem, mögulega, lifa enn í skelfilegum ótta.“

Einnig misnotaður af Bennell

Eftir að Woodward rauf þögnina hafa fleiri stigið fram og sagt svipaða sögu. Steve Walters ólst einnig upp í herbúðum Crewe og þar kynntist hann Barry Bennell. Walters þótti, eins og Woodward, efnilegur knattspyrnumaður og árið 1988 varð hann yngsti leikmaðurinn til að spila leik fyrir aðallið félagsins, rétt rúmlega sextán ára, og stendur met hans enn.

Barry Bennell var dæmdur í níu ára fangelsi árið 1998 fyrir að misnota fjölda drengja.
Alræmdur níðingur Barry Bennell var dæmdur í níu ára fangelsi árið 1998 fyrir að misnota fjölda drengja.

Hann hefur aldrei áður tjáð sig opinberlega um reynslu sína af Bennell. „Í öll þessi ár hef ég borið þetta leyndarmál á herðum mínum. En nú er kominn tími til að segja frá,“ sagði Walters við The Guardian í vikunni. Misnotkunin hófst árið 1984, þegar Walters var tólf ára, en þá hafði hann unnið keppni þar sem verðlaunin voru að fá að æfa með drengjaliði Manchester United. Bennell, sem þá var nýkominn til Crewe, var á hliðarlínunni og hreifst af hæfileikum Walters og fór svo að hann bauð honum að koma til Crewe og æfa með liðinu. „Mér fannst hann frábær þjálfari og hann hafði gott lag á að láta manni líða eins og maður væri sérstakur. Hann lofaði mér að hann myndi gera mig að stórkostlegum leikmanni,“ sagði hann en í kjölfarið hófst misnotkunin.

Dofinn tilfinningalega

Þriðji knattspyrnumaðurinn sem steig fram á dögunum er fyrrnefndur Paul Stewart sem á sínum tíma lék þrjá landsleiki fyrir England auk þess að leika með Liverpool og Tottenham. Ekki kemur fram í umfjöllun Mirror hvaða þjálfari það var sem misnotaði hann en Paul, sem í dag er 52 ára, segir að þetta hafi gerst þegar hann var 11 til 15 ára. Paul segir að í 40 ár hafi hann þagað yfir þessu leyndarmáli og ekki sagt nokkrum manni frá, ekki einu sinni sínum nánustu. Hann vonast þó til þess að frásögn hans verði til þess að aðrir stígi fram og opni sig.

Stewart segir að umræddur þjálfari hafi vingast við foreldra hans og fundið ýmsar afsakanir til að taka hann afsíðis þar sem misnotkunin fór fram, ýmist í bíl þjálfarans eða á heimili hans. Paul sagði við Mirror að afleiðingarnar hefðu verið skelfilegar fyrir hann og leitaði hann á náðir Bakkusar og jafnvel fíkniefna á fullorðinsárum sínum. Og enn þann dag í dag glímir Paul við afleiðingarnar. Hann kveðst ekki getað faðmað eiginkonu sína eða börn sín og eigi erfitt með að segjast elska þau. Hann sé í raun dofinn tilfinningalega. „Ég verð afi fljótlega og vil breytast og geta sýnt væntumþykju. Það er ein versta afleiðingin, að hafa ekki getað hleypt neinum nálægt mér.“

Miðað við þann fjölda sem hefur stigið fram að undanförnu þykir líklegt að fleiri munu stíga fram og segja sína sögu á næstunni. Enska knattspyrnusambandið hefur brugðist við og komið upp þjónustugátt sem knattspyrnumenn geta leitað til. „Ég er sannfærður um að það eru margir þarna úti sem hafa þjáðst í þögn. Ég vil að þeir viti að þeir eru ekki einir og hafa ekkert til að skammast sín fyrir. Sökin er ekki þeirra,“ sagði Stewart.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“
433Sport
Í gær

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?