fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Pressan

Átti 99 ára fangelsi yfir höfði sér: Þá fann hann myndirnar í símanum

Ritstjórn Pressunnar
Föstudaginn 16. nóvember 2018 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristopher Precopia, karlmaður í Texas í Bandaríkjunum, var heldur ringlaður þegar lögreglumenn handtóku hann ekki alls fyrir löngu. Precopia vissi ekki til þess að hann hefði gert neitt af sér en fékk áfall þegar lögregla sagði honum hvað hann væri grunaður um.

Þannig er mál með vexti að nokkru fyrir handtökuna var ráðist á fyrrverandi kærustu hans með hrottalegum hætti. Brotist var inn á heimili hennar og hún skorin illa. Skildi árásarmaðurinn meðal annars eftir X á bringu hennar sem hann hafði skorið með dúkahníf.

Precopia reyndi hvað hann gat að hugsa hvar hann hefði verið þennan örlagaríka dag – því eitt væri víst. Hann hefði hvergi komið nálægt hinni hrottalegu árás.

Precopia mundi að þennan dag var hann ekki einu sinni verið í bænum. Hann var á hóteli með móður sinni og fleirum í um 100 kílómetra fjarlægð frá heimili fyrrverandi kærustu sinnar.
Þennan dag hafði Precopia tekið myndir, sjálfsmyndir meðal annars, og birt á samfélagsmiðlum.

Níu mánuðum eftir handtökuna ákváðu saksóknarar að fella málið gegn honum niður – og var ástæðan sú að myndirnar voru sannarlega teknar þennan dag og því var Precopia ekki nálægt árásarstaðnum. Hefði hann verið fundinn sekur hefði hann getað átt yfir höfði sér 99 ára fangelsi. Sérfræðingar rannsökuðu myndirnar og komust að því að þær hefðu verið teknar þennan dag auk þess sem lögregla ræddi við fjölda fólks sem var með honum þennan dag.

Ekki liggur fyrir hvaða sönnunargögn lögregla hafði gegn honum – ef einhver – til að byrja með og hefur lögregla ekki fengist til að tjá sig um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Líkamsrækt gæti snúið öldrunarferlinu við

Líkamsrækt gæti snúið öldrunarferlinu við
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós
Pressan
Fyrir 5 dögum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir
Pressan
Fyrir 5 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað
Pressan
Fyrir 6 dögum

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta