fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Vilhjálmur: Nú er nóg komið! Íslensk hjón með tvö börn keyptu íbúð – Sjáðu kjörin sem þeim bauðst

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 11. nóvember 2018 21:22

Vilhjálmur Birgisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Til mín leituðu ung hjón sem eiga tvö börn og eitt á leiðinni, en þau áttu sér þann draum að komast út af leigumarkaðnum vegna þess að leigan var nokkuð dýr eða180 þúsund á mánuði og einnig leið þeim ekki vel vegna þess óöryggis sem fylgir því að vera á leigumarkaðnum.“

Svona hefst pistill sem Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. varaforseti ASÍ, birtir á Facebook-síðu sinni í kvöld. Þar tekur hann dæmi af íslenskum fasteignamarkaði og þeim kjörum sem bjóðast hjá lánastofnunum. Óhætt er að segja að ungu hjónin í dæmi Vilhjálms eru ekki þau einu á Íslandi sem eru, eða hafa verið, í þessum sporum undanfarin misseri.

Tóku lán upp á 24,8 milljónir

Vilhjálmur segir hjónin hafa tjáð sér að þau hefðu keypt þriggja herbergja íbúð í tvíbýli og fengið hana á 28,9 milljónir króna – ekki ýkja stór upphæð á íslenskum fasteignamarkaði en engu að síður stór biti fyrir marga. „Þau tjáðu mér að þau hafi verið búin að safna rétt tæpum 4 milljónum sem þau hefðu notað sem útborgun í umræddri fasteign. Það þýddi að þau þurftu að taka 24,8 milljónir að láni hjá einum af viðskiptabönkunum þremur.“

Vilhjálmur fjallar svo um lánakjörin sem hjónunum stóð til boða. Þrátt fyrir að hafa greitt út fjórar milljónir króna þurftu þau að taka þrjú lán hjá bankanum. Með öðrum orðum var þessum 24,8 milljónum skipt niður á þrjú lán sem Vilhjálmur útlistar síðan:

„Fyrsta lánið var 16,3 milljónir verðtryggt jafngreiðslulán til 40 ára með breytilegum vöxtum upp á 3,65%

Annað lánið var 6,5 milljónir verðtryggt jafngreiðslulán til 25 ára með breytilegum vöxtum uppá 4,75%

Þriðja lánið var uppá tæpar 2 milljónir óverðtryggt til 10 ára með breytilegum vöxtum uppá 6,75%

Hugsið ykkur þessum ungu hjónum er boðið uppá verðtryggða breytilega vexti frá 3,65% uppí 4,75% og síðan óverðtryggða vexti sem nema tæpum 7% og það á sama tíma og neytendum í öllum þeim löndum sem við berum okkar saman við standa til boða vextir frá 0,5% uppí 2,5% óverðtryggða!“

Níðst á unga fólkinu

Vilhjálmur segir að svo tali fólk sem vill láta taka sig alvarlega í íslensku samfélagi að vextir hafi aldrei verið lægri á Íslandi. Þeir sömu gleymi að taka það með í reikninginn að ef unga fólkið á ekki fyrir útborgun sem dekkar 65 til 70 prósent af verðinu þurfi það að taka viðbótarlán sem bera miklu hærri vexti en þeir lægstu sem standa til boða.

„Það er svo dapurt og sorglegt hvernig við sem samfélag látum það átölulaust hvernig níðst er á unga fólkinu okkar og reyndar á öllum neytendum á húsnæðismarkaði. Að stjórnvöld, stjórnmálamenn og ég tala nú ekki um verkalýðshreyfinguna skuli taka þátt í því að horfa aðgerðalaus á þetta skefjalausa ofbeldi sem íslensk heimili þurfa að þola þegar kemur að okurvöxtum, verðtryggingu og himinn háum þjónustugjöldum fjármálakerfisins er óskiljanlegt með öllu.

Við borgum 66 milljörðum meira í vexti

Vilhjálmur er þeirrar skoðunar að verkalýðshreyfingin verði að láta kné fylgja kviði og krefja stjórnvöld um að taka stöðu með neytendum og heimilum framyfir hagsmuni fjármálaelítunnar.

„Munum kæru vinir og félagar að við Íslendingar erum að greiða 3 til 3,5% hærri raunvexti árhvert sem þýðir að við erum að greiða 66 milljörðum meira í vaxtakostnað á hverju ári miðað við þá vexti sem neytendur á Norðurlöndunum standa til boða.

Það er ákall um að gerðar verði róttækar kerfisbreytingar íslenskri alþýðu og heimilum til hagsbóta.

Munum að okurvextir, verðtrygging og að húsnæðisliður sé inní í lögum um vexti og verðtryggingu er ekkert náttúrulögmál heldur mannanna verk sem hægt er að breyta, allt sem til þarf er kjarkur vilji og þor!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta