fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

SJCAM smávídeóvélar: Ótrúleg gæði – ótrúlega lágt verð

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 4. febrúar 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar þú ert í veislu eða á öðrum mannamótum þá notarðu símann þinn til að mynda gleðina en það er öðruvísi þegar þú ert í veiðinni eða einhverju sporti, eða börnin á hjólabrettum, snjóbrettum, í fimleikum, boltaíþróttum eða öðru sporti sem ungir og frískir krakkar taka þátt því; þá þarf aðra græju til að mynda. Ekki eru krakkarnir að fara að festa 100.000 króna síma á stöngina til að ná mynd af því þegar þau steypast í snjóinn eða sundlaugina. Nei, það þarf græju sem er byggð fyrir slíka aksjón og þolir hana,“ segir Arnar Einarsson, eigandi vefverslunarinnar Sportmyndavélar, sem býður upp á frábærar vídeómyndavélar undir merkinu SJCAM, en með þeim er hægt að ná mjög góðum myndskeiðum og ljósmyndum af sjálfum sér og öðrum á hreyfingu, til dæmis við útivist og alls konar vasklega iðju.

„Þetta byrjaði allt með því að mig langaði í Go Pro myndavél en þau tæki eru frábær. En mér fannst þær heldur dýrar. Ég rakst á SJCAM á netinu og prófaði að kaupa hana. Nokkrum árum síðar á ég hana ennþá, hún hefur aldrei bilað, gæðin á myndefninu úr henni komu mér mjög á óvart og hún hefur reynst mér mjög vel.“

SJCAM er kínversk framleiðsla en ólíkt því sem margir eiga að venjast um margar kínverskar vörur eru þetta afar vandaðar græjur. „Þær hafa fengið ofboðslega góða dóma. Frá því ég byrjaði að selja þessar vélar, í maí 2016, hef ég aðeins fengið eina vél til baka bilaða. Vélarnar eru í tveggja ára ábyrgð og ef vél bilar fær viðskiptavinurinn einfaldlega nýtt tæki.“

Svo ódýrar að fólk trúir því ekki hvað þær eru vandaðar

SJCAM vélarnar eru kjörin fermingargjöf og má taka sem dæmi tvær tegundir, SJCAM SJ4000 og SJCAM SJ4000 WiFi. „Þetta eru þær vélar sem ég sel langmest af enda eru þær mjög ódýrar. Gæðin eru mikil: myndskeið í háskerpu og ljósmyndir í 12 megapixla gæðum. Skjár er á bakhliðinni svo þú getur séð nákvæmlega hvað þú ert að gera. Fjöldinn allur af stillingum um hvernig þú vilt hafa myndina, stilla lýsingu og allt það – þær eru með stöðugleikastillingu þannig að myndin hristist lítið þó að þú sért á hlaupum,“ segir Arnar um SJ4000. SJCAM SJ4000 WiFi hefur síðan allt þetta til að bera auk nettengingar:

„Þú getur tengt vélina beint við símann þinn og skoðað myndefni á símanum jafnóðum. Þú getur fylgst með sjálfum þér bruna framhjá vélinni – eða skoðað myndir og myndskeið strax á símanum. Af símanum getur þú síðan hent efninu beint inn á Facebook, Instargram eða aðra samfélagsmiðla nánast um leið og myndefnið verður til.“

Þessar tvær vélar eru ótrúlega ódýrar. SJCAM SJ4000 kostar 13.488 kr. og SJCAM SJ4000 WiFi kostar 17.919 kr. Vegna verðsins eiga margir erfitt með að trúa hvað þetta eru góð tæki. En fyrir utan að vera sterkar og endingargóðar eru myndgæðin frábær. „Það er ótrúlegt hvað maður fær góðar myndir úr þessu,“ segir Arnar.

„En það þarf að passa sig á því að þessar vélar eru það góðar að það eru komnar alls konar eftirlíkingar af þeim sem eru alls ekki eins góðar. Á hinum ýmsu söluvefjum eru til sölu vélar með nákvæmlega sama heiti en eru allt aðrar vélar og gæðin eru ótrygg,“

Ráðið við þessu er að kaupa vélarnar einfaldlega á vefnum sportmyndavelar.is til að fá örugglega ósvikna SJCAM.

Frábær aukapakki innifalinn

Með SJCM vélunum er mikið úrval aukahluta staðalbúnaður og er innifalinn í verðinu. „Með vélinni fylgir einni kassi, hellingur af alls konar festingum til að festa vélina á hitt og þetta, vatnshelt húns þannig að hægt er að kafa með vélina í sjónum eða sundlauginni og þolir hún þá 30 metra dýpi. Fyrir svo utan aukahlutina má nefna ótal frábæra eiginleika, eins og fjórfaldan aðdrátt og andlitsgreiningu,“ segir Arnar.

Nánari upplýsingar eru inn á vefnum sportmyndavelar.is og fjölmargar aðrar spennandi, vandaðar og ódýrar vörur sem þar eru til sölu. Vörurnar eru eingöngu til sölu í vefverslun á vefnum sportmyndavelar.is. Sent er hvert á land sem er og upp að dyrum þar sem því verður við komið. Sendingarkostnaður er 1.500 kr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum