Maðurinn er sagður vera 28 til 30 ára og um 180 sm á hæð. Hann er grannur og með lítið andlit. Hann var í dökkum skóm, dökkum buxum og dökkum jakka með hettu. Hann var einnig með dökka derhúfu sem var undir hettunni. Lögreglunni hefur ekki tekist að finna manninn. Hann er grunaður um að hafa myrt Louise sem barnshafandi og var komin sjö mánuði á leið.
Morðið var hrottalegt en Louise var stungin til bana. Lögreglan er engu nær í dag um ástæðu morðsins en fyrir tæpum tveimur árum. Af þessum sökum hefur sérstakur rannsóknarhópur verið settur á laggirnar og á hann að fara yfir málið og öll þau gögn sem lögreglan hefur undir höndum. Hópurinn hefur nú unnið að málinu í einn mánuð og hefur unnið að nákvæmri yfirferð allra málsgagna.