fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Pressan

Tveir unglingar létust í kjölfar hræðilegs ofbeldisverks í Þrándheimi – Meintur gerandi skotinn af lögreglunni

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 17. september 2018 19:09

Myndin tengist fréttinni ekki beint.Mynd: Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hræðilegt ofbeldismál kom upp í Prinsens götu í Þrándheimi í Noregi nú síðdegis. Þar voru þremur einstaklingum veittir áverkar í hrottalegri árás. Tveir þeirra eru látnir en sá þriðji er ekki talinn í lífshættu. Lögreglumenn skutu hinn meinta geranda í miðbæ Þrándheims, nærri lestarstöðinni.

Lögreglunni barst tilkynning klukkan 17.54 að staðartíma um að einn hefði verið beittur miklu ofbeldi og fleiri væru á vettvangi. Þetta var í íbúð í Prinsens götu. Lögreglumenn fóru inn í íbúðina klukkan 18.09 og fundu tvo alvarlega slasaða einstaklinga. Þeir voru fluttir á sjúkrahús en ekki tókst að bjarga lífi þeirra.

Klukkan 18.38 var meintur árásarmaður handtekinn í miðbænum eftir að lögreglumenn höfðu skotið hann í fótlegg.

Lögreglan segir að árásarmaðurinn hafi ekki notað skotvopn við ofbeldisverkin en hafi verið með verkfæri. Lögreglan hefur ekki viljað skýra frá hvernig verkfæri var um að ræða.

Norska ríkisútvarpið segir að óljóst sé um alvarleika meiðsla hins meinta geranda.

Uppfært klukkan 19.20

Norska ríkisútvarpið segir að það hafi verið unglingar sem létust.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós

Lömuð fyrir neðan háls eftir að hafa borðað súpu úr niðursuðudós
Pressan
Fyrir 2 dögum

Áhugaverð niðurstaða nýrrar rannsóknar á háhyrningum

Áhugaverð niðurstaða nýrrar rannsóknar á háhyrningum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Íbúar slegnir vegna aðgerða lögreglu – Eru Gilgo-morðinginn og „slátrarinn í Manorville“ einn og sami maðurinn?

Íbúar slegnir vegna aðgerða lögreglu – Eru Gilgo-morðinginn og „slátrarinn í Manorville“ einn og sami maðurinn?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi

Skólapiltur reyndi að berja sofandi samnemendur sína með hamri þegar þeir sváfu – Var að vernda sig gegn uppvakningaheimsendi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir
Pressan
Fyrir 5 dögum

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin