Valdimar ákærður fyrir stórfelld eignaspjöll
Valdimar Lúðvík Gíslason hefur verið ákærður fyrir að hafa skemmt friðað hús í Bolungarvík í júlí 2014. Hann er ákærður fyrir stórfelld eignaspjöll, brot gegn hagsmunum almennings og brot á lögum um menningarminjar. Gerð er sú krafa að hann greiði 5,5 milljónir króna í skaðabætur vegna málsins. Bæjarins besta greinir frá þessu
Valdimar sagði við DV þann 9. júlí 2014 að húsið, sem er við Aðalstræti 16, hafi verið slysagildra. „Þannig er að bærinn keypti þetta hús fyrir tveimur árum til niðurrifs. Þetta er ónýtt hús, sem stendur einn meter út á götuna. Húsið stendur í leið að ráðhúsi bæjarins, sem alla þjónustu fyrir eldra fólk í Hvíta Húsinu í Bolungarvík er að finna. Það eru hér stór íbúðarhús sem eldri borgarar búa í og þeir verða að fara alltaf út á götuna til að komast á þessa stofnun. Krækja fyrir þetta hús sem búið er að standa autt núna í nokkur ár. Og það hefur aldrei verið hægt að ganga í þetta mál.“
Valdimar Lúðvík lýsti fljótlega yfir ábyrgð á verknaðinum og bar við neyðarrétti. Hann gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsisvist vegna málsins. Málið verður þingfest hinn 19. október næstkomandi.