,,Við komum að þessu við Hópið og aðkoman var ekki falleg,“ sagði Sverrir Rúnarsson á Veiðidellunni sem hann heldur úti á Facebook. Sverrir kom að hrúgu af dauðum silungum sem lágu þarna við vatnið og hitastigið var 19 stig,
Mikla lykt lagði frá sílungahrúgunni. Ekki þarf að fara mörgum orðum um svona umhirðu sem er með öllu ólíðandi.
.,,Ég lenti í svipaðri uppákomu við Vífilsstaðavatn í fyrra,“ sagði ljósmyndari sem oft myndar við vatnið. Hann sagðist þá hafa komið að tólf dauðum urriðum og virtist sem öllum stæði á sama. Þetta er ekki góð umgengni og þeim til skammar sem ganga svona um.
Mynd. Dauðir silungar við Hópið fyrir fáum dögum. Ljósmynd Sverrir.