,,Þetta er búið að vera eitt ævintýri hérna á Vatnasvæði Lýsu. Um er að ræða mokveiði, flotta urriða og vel væna,“ sagði Gunnar Hrafn Hall sem fór við þriðja mann til veiða á svæðinu á miðvikudaginn og á fimmtudaginn.
,,Við mættum þarna neðar á svæðið og hófum veiðar með spún og það var fiskur á í hverju kasti. Þetta var mokveiði og flottir fiskar, vel vænir. Sonurinn landaði hverjum fiski á fætur öðrum og þeir tóku vel í. Þetta er frábær svæði og við eigum örugglega eftir að fara þarna aftur. Þetta kom verulega á óvart skal ég segja þér,“ sagði Gunnar í viðtali Gunnar í mokveiði á Lýsunni
Mynd. Oliver Orri Hall með flottan urriða í vikunni af Vatnasvæði Lýsu. Mynd Gunnar.