Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og óháðra hafa gert með sér sáttmála um myndum meirihluta bæjarstjórnar, sem ber yfirskriftina „Bætt þjónusta, betri bær“. Í sáttmálanum kemur fram að áhersla sé lögð „á málefni fjölskyldunnar, eldri borgara og skilvirka þjónustu í þágu íbúa og fyrirtækja.“ Hér má lesa sáttmálann í heild sinni.
Rósa Guðbjartsdóttir nýr bæjarstjóri hlakkar til að takast á við þau verkefni sem framundan eru og líst vel á það meirihlutasamstarf sem nú er hafið.
„Við sitjum hér í umboði bæjarbúa, markmið okkar eru skýr og við munum hefjast handa strax. Ætlunin er að efla skilvirkni sveitarfélagsins og bæta þjónustuna við bæjarbúa. Við ætlum að gera Hafnarfjörð enn betri.“
„Við erum að boða ákveðna framtíðarsýn, hvernig við getum gert góðan bæ enn betri. Þar erum við að leggja áherslu á málefni barnafjölskyldna, eldri borgara og húsnæðismál. Það er meginstefið í þessum málefnasamningi milli flokkanna,“