Á þriðja tímanum í nótt var tilkynnt um tvo karla og konu, öll á þrítugsaldri, sem voru að spreyja á húsgafl á Laugavegi. Lögreglumenn ræddu við fólkið sem neitaði að hafa verið að spreyja þrátt fyrir að athæfi þeirra hafi verið tekið upp með eftirlitsmyndavél.
Fimm ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn þeirra var með lítilræði af fíkniefnum meðferðis. Annar reyndist vera sviptur ökuréttindum og sá þriðji hafði ekki öðlast ökuréttindi.