Ef þig langar í bíó með bestu vinkonunni, fjölskyldumeðlimi eða jafnvel deitinu, þá gæti heppnin verið með þér.
Bleikt hefur fengið í hendurnar opna boðsmiða á gamanmyndina Ocean’s 8 og einnig fjölskyldumyndina The Incredibles 2.
Ocean’s 8 var frumsýnd á dögunum við góðar undirtektir og skothelda aðsókn. Um er að ræða fjórðu Ocean’s myndina en einnig sjálfstæða sögu. Nú er það Debbie Ocean, systir Danny, sem tekur við keflinu og leiðir sinn stórsnjalla hóp, en með aðalhlutverkin fara þær Sandra Bullock, Cate Blanchett, Rihanna, Mindy Kaling, Sarah Paulson, Awkwafina, Helena Bonham Carter og Anne Hathaway.
The Incredibles 2 er framhald stórvinsællar teiknimyndar frá Pixar um Parr-fjölskylduna. Þótt þrettán ár séu liðin frá því við hittum Parr-fjölskylduna hefur tíminn í sögunni um þau lítið liðið því myndin byrjar nánast þar sem þeirri fyrstu lauk.
Eftir að hafa bjargað heiminum frá glötun færist nú ró yfir fjölskyldulífið, allt þar til Helenu er boðið nýtt og mikilvægt starf sem hún getur ekki hafnað. Vandamálið við það er að þá verður Bob auðvitað að sjá um heimilishaldið en það er langt í frá létt verk því það inniheldur að hafa hemil á krökkunum þremur. En að sjálfsögðu gerast síðan atburðir sem kalla á að Parr-fjölskyldan bretti enn á ný upp ermarnar og bjargi mannkyninu frá tortímingu …
Miðarnir gilda á allar opnar sýningar myndanna. Í boði fyrir hvern vinningshafa eru sex boðsmiðar, þrír á sitthvoru myndina.
Það eina sem þú þarft að gera er að skilja eftir athugasemd að neðan og merkja þann sem þú myndir helst vilja bjóða með í bíó.
Dregið verður reglulega út til 21. júní. Vinningshöfum verður svarað í þræðinum.