Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag er rýnt í sáttmála hins nýja meirihluta í Reykjavík. Þar er tekin fyrir kafli sem fjallar um Reykjavíkurflugvöll, sem Staksteinar segja „skrítinn“:
„Rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar verður tryggt meðan unnið er að undirbúningi nýs flugvallar í nágrenni borgarinnar. Aðalskipulagi Vatnsmýrar verði breytt og lokun flugvallarins seinkað þegar samningar hafa náðst við ríkið um borgarlínu sem styður við nauðsynlega uppbyggingu á Ártúnshöfða, í Elliðavogi, á Keldum og í Keldnaholti.“
Staksteinar segja textann ekki sérlega skýran, en það liggi beinast við að skilja hann þannig að borgarstjórnarmeirihlutinn muni setja það skilyrði fyrir frestun á lokun Reykjavíkurflugvallar, að ríkið semji um aðkomu að borgarlínunni, með fjárútlátum.
„Einhvern tíma hefði slík uppsetning kallast fjárkúgun,“ segja Staksteinar.
Borgarlínuáformin virðast í uppnámi frá því að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sagði að hvorki ríkið né Reykjavíkurborg, eða sveitarfélögin þar í kring, hafi sýnt fram á að þau gætu staðið undir borgarlínunni fjárhagslega.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er samt vikið að því að styðja skuli við borgarlínuna. Hinsvegar er hvergi getið um neinar upphæðir, eða tímamörk í því sambandi og gæti því stuðningurinn allt eins verið andlegur.