fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Nýtt hjá Innrammaranum: Hágæða prentun

Kynning

Ljósmyndarar og listamenn hafa tekið þessari nýju þjónustu fagnandi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 27. júlí 2016 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér áður fyrr fylgdi því spenna að fara með filmu í framköllun og fá svo að sjá afraksturinn nokkru seinna. Nú er öldin önnur og fæstar stafrænar ljósmyndir eru prentaðar út. Þegar við prentum uppáhaldamyndirnar okkar ættum við að vanda valið og sjá til þess að gæði þeirra séu eins mikil og mögulegt er.

 hafa gefið út staðla fyrir prentiðnaðinn frá árinu 1847. Þátttaka í ArtSure tryggir að stöðlum félagsins sé fylgt og samsetning bleks og pappírs hafi verið prófuð af óháðum aðilum. Innrammarinn fylgir þessum stöðlum og notar einugis blek og pappír sem uppfyllir þessi skilyrði.
The Fine Art Trade Guild hafa gefið út staðla fyrir prentiðnaðinn frá árinu 1847. Þátttaka í ArtSure tryggir að stöðlum félagsins sé fylgt og samsetning bleks og pappírs hafi verið prófuð af óháðum aðilum. Innrammarinn fylgir þessum stöðlum og notar einugis blek og pappír sem uppfyllir þessi skilyrði.

Innrammarinn við Rauðarárstíg hefur nú bætt hágæða prentun við þjónustu sína. Að sögn Georgs Þórs Ágústssonar framkvæmdastjóra hefur þessi nýjung gefist svo vel að fljótlega ákvað hann að bæta við öðrum prentara til að auka enn á möguleikana. Prentunin er bæði sniðin að þörfum atvinnuljósmyndara og annarra sem þurfa að láta prenta myndir eða annað í háum gæðum.

Innrammarinn prentar á hágæða pappír sem stenst gæðakröfur The Fine Art Trade Guild og getur boðið upp á skráningu og eftirlit með prentstöðlum frá ArtSure. Þar er hægt að velja um ljósmyndapappír, titaníum-pappír, silkipappír og vatnslitapappír auk þess sem prentað er á striga.

 hentar vel fyrir prentun á ljósmyndum allt frá 10x15 cm upp í A2 stærð. Prentarinn notar LUCIA PRO blekkerfi sem gefur sérstaklega þéttan og djúpan svartan lit sem hentar vel til útprentunar á svart hvítum ljósmyndum.
Canon imagePROGRAF PRO-1000 hentar vel fyrir prentun á ljósmyndum allt frá 10×15 cm upp í A2 stærð. Prentarinn notar LUCIA PRO blekkerfi sem gefur sérstaklega þéttan og djúpan svartan lit sem hentar vel til útprentunar á svart hvítum ljósmyndum.

Lögð er áhersla á mikinn endingartíma en notast er við Canon Lucia EX blek og hágæða pappír frá PermaJet. Útgefinn endingartími frá Canon er rúm 100 ár áður en prentunin byrjar að dofna.

Ljósmyndarar og listamenn sem vilja prenta eftirprentanir af verkum sínum hafa tekið þessari nýju þjónustu fagnandi. Það er þó einnig einfalt fyrir almenning að láta prenta myndir sínar og önnur verk í stafrænu formi. Hægt er að senda pöntun á prentun@innrammarinn.is eða koma með minnislykla, -kort eða myndefni á geisladiskum í Innrammarann, Rauðarárstíg 33 þar sem hægt er að skoða úrval af pappír og jafnvel skoða innrömmunarmöguleika í leiðinni. Heppileg upplausn mynda er að minnsta kosti 240 dpi.

Innrammarinn ehf
Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík
Sími 511 7000 www.innrammarinn.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum