

Randers tók á móti SönderjyskE í dönsku úrslitakeppninni í dag en leiknum lauk með 3-0 sigri heimamanna.
Saba Lobzhanidze reyndist gestunum erfiður í dag en hann skoraði þrennu í leiknum.
Hannes Þór Halldórsson var á sínum staði í marki Randers og þá spilaði Eggert Gunnþór Jónsson allan leikinn á miðjunni hjá gestunum.
Randers er með 27 stig í þriðja sæti riðilsins og á leiðinni í umspil um laust sæti í deildinni en Sönderjyske er í öðru sæti riðilsins með 38 stig og mun að öllum líkindum spila um laust sæti í Evrópukeppni.
Þá mættust Nordsjælland og Bröndby í hörkuleik þar sem að Bröndby hafði betur, 4-3 en Hjörtur Hermannson skoraði fjórða mark Bröndby í leiknum.
Rúnar Alex Rúnarsson stóð á milli stanganna hjá Nordsjælland í dag og þá spilaði Hjörtur Hermannsson allan leikinn í hjarta varnarinnar.
Bröndby er á toppi úrslitariðilsins með 75 stig og hefur 5 stiga forskot á Midtjylland en Nordsjælland er í þriðja sætinu með 54 stig.