fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Köngulóin ræðst á Kaupmannahöfn

Egill Helgason
Miðvikudaginn 8. desember 2004 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er merkileg sýn sem birtist á íslenskt viðskiptalíf í Berlingske Tidende. Þarna er komið fram nýtt hugtak – íslenska köngulóin. Kolkrabbinn er dauður, lifi köngulóin! Í þætti hjá mér var stungið upp á því að íslenskir bisnessmenn keyptu Berling, þetta gamla og virðulega blað, til að koma í veg fyrir að svona umfjöllun birtist aftur.

Annars er spaugilegt að heyra hvernig sumir tala um innrás Íslendinga í danskt viðskiptalíf. Þeir sjá í þessu makleg málagjöld fyrir nýlendukúgun og arðrán. Jafnvel hefnd – eins og það skipti okkur launafólkið einhverju máli hvort íslenskur bisnessmaður eða danskur eignast Strikið.

Í Íslandsklukkunni er sena þar sem er horft yfir Kaupmannahöfn, turna hennar og hallir, og sagt að þetta hafi allt verið byggt fyrir íslenskan auð. Maður getur svosem ekki láð Halldóri Laxness þó hann hafi tekið sér ákveðið skáldaleyfi; hængurinn er bara sá að margir á Íslandi kusu að trúa þessu – það féll vel inn í þjóðrembustemminguna í kringum lýðveldisstofnunina.

Mér hefur alltaf þótt sennilegra að lítið hafi verið upp úr Íslandsversluninni að hafa. Skipaferðir voru stopular, áhættan mikil, og varla neinn lúxusvarningur sem héðan var fluttur. Fátækrafæði, gróf klæði á fátæklinga. 50 þúsund manns – mestanpart öreigalýður – eiga að hafa verið mikil uppspretta auðs. Varla líklegt.

Svo má líka geta þess að Kaupmannahöfn er kannski ekki sú stórfenglega borg sem mörgum Íslendingum hefur virst hún. Turnarnir og hallirnar eru að takmörkuðu leyti úr gulli; flestar byggingarnar í raun smáar og lágreistar. Sívaliturn reyndist ekki vera það mannvirki sem manni var sagt frá í bernsku. Kaupmannahöfn er varla annað en útkjálkahöfuðborg – þótt Frónbúum hafi virst hún stór og merk.

Svo koma íslenskrir bisnessmenn löngu síðar og hirða fínustu verslun Danaveldis (hvenær voru Danir síðast "veldi"?) fyrir smáaura. Ég bendi á ágæta grein sem birtist á Deiglunni um niðurlægingu Magasin du Nord.

— — —

Peter Preston skrifar grein í Guardian og talar um að fyrst verið sé að setja viðvaranir á hitt og þetta, sé kominn tími til að vara með sama hætti við sjónvarpinu. Það sé hinn mesti heilsuspillir – flestar viðlíka ógnir við heilsu barna og unglinga séu löngu komnar inn á verksvið heilbrigðisyfirvalda.

Preston segir að auðveldlega sé hægt að tengja sjónvarpið við margvíslega óáran sem sífellt er verið að tala um. Athyglisbrest, námsörðugleika, ofbeldi, offitu, sykursýki, hreyfingarleysi, misþroska og margt fleira. Samt sé ekkert gert.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi