fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Maður á áttræðisaldri geymdi mikið magn af kókaíni á hótelherbergi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 16:00

Mynd: Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært mann á 73. aldursári fyrir stórfellt fíkniefnabrot.

Maðurinn, sem er ríkisborgari Perú, heitir Alberto Santiago Huarcaya Ramirez. Honum er gefið að sök að hafa fimmtudaginn 20. nóvember 2025 flutt inn tæplega 2,6 kíló af sterku kókaíni (allt að 88% styrkleiki) með farþegaflugi frá Amsterdam í Hollandi til Keflavíkurflugvallar.

Fíkniefnin voru falin í ferðatösku. Hann flutti töskuna í hótelberbergi á Hótel Cabin í Borgartúni föstudagskvöldið 21. nóvember. Kom þá ónefndur aðili á hótelið, tók við fíkniefnunum og flutti þau í íbúð í Bríetartúni. Lögregla kom þar á vettvang og lagði hald á fíkniefnin.

Í ákærunni segir að Alberto hafi fengið greiddar 8.000 evrur fyrir innflutninginn, andvirði tæplega 1,2 milljóna íslenskra króna.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness miðvikudaginn 11. febrúar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Eiríkur segir að íslensk tunga muni styrkjast við inngöngu í Evrópusambandið – Nefnir dæmi

Eiríkur segir að íslensk tunga muni styrkjast við inngöngu í Evrópusambandið – Nefnir dæmi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision