fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 07:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn heppinn miðaeigandi Happdrættis Háskóla Íslands var í óðaönn að máta föt í verslun á Tenerife þegar starfsmaður happdrættisins hringdi til að tilkynna um að hann hefði unnið eina milljón króna í útdrætti dagsins. Sá var heldur betur ánægður og ætlaði út að borða í kvöld og fagna vinningnum. Það fylgdi þó ekki sögunni hvort vinningurinn yrði nýttur í kaup á einhverju af fatnaðinum úr mátunarklefanum.
Dregið var í happdrættinu í gær og annar stálheppinn miðaeigandi átti þá afmæli og fékk hann því  1,4 skattfrjálsar milljónir króna í afmælisgjöf frá HHÍ. Þetta var ekki fyrsti stóri vinningurinn sem hann hefur hlotið frá Happdrættinu og sagðist hann stoltur styðja við uppbyggingu Háskóla Íslands.
Heppnum Íslendingum fjölgaði um 3.659 í dag og skiptu þeir á milli sín rúmlega 156 milljónum króna. Milljónaveltan var 30 milljónir króna og féll ekki í þetta skiptið og því verður potturinn 45 milljónir króna í mars fyrir einn heppinn einstakling.
Með kaupum á miða í Happdrætti Háskólans stuðla miðaeigendur að áframhaldandi uppbyggingu Háskóla Íslands og tryggja Íslendingum blómlegt háskólasamfélag. Allur hagnaður af rekstri HHÍ fer í uppbyggingu Háskóla Íslands og hafa á þriðja tug bygginga risið fyrir happdrættisfé.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

„Færð bara yfir þig dembuna“

„Færð bara yfir þig dembuna“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn
Fréttir
Í gær

Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með 15 ára stúlku um borð í skip

Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með 15 ára stúlku um borð í skip
Fréttir
Í gær

Unglingur sakaður um að hrækja framan í lögreglumann á Hornafirði

Unglingur sakaður um að hrækja framan í lögreglumann á Hornafirði
Fréttir
Í gær

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss
Fréttir
Í gær

Munu Íranar ráðast beint á Bandaríkin? Vaxandi ótti um hefndaraðgerðir

Munu Íranar ráðast beint á Bandaríkin? Vaxandi ótti um hefndaraðgerðir
Fréttir
Í gær

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”
Fréttir
Í gær

Meðalbiðtíminn eftir heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu 27 dagar – Fer upp í allt að 115 daga

Meðalbiðtíminn eftir heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu 27 dagar – Fer upp í allt að 115 daga