fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
Eyjan

Steingrímur J. þingmaður ársins

Egill Helgason
Sunnudaginn 22. maí 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steingrímur J. Sigfússon, formðaur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs er þingmaður ársins að mati lesenda Vísis. Niðurstöður kosninga á Vísi voru kynntar í lokaþætti Silfurs Egils í dag og hlaut Steingrímur J. afgerandi kosningu. Þá er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sá einstaklingur sem lesendur Vísis vilja helst sjá á þingi.

Spurt var hver hefði staðið sig best á nýafstöðnu þingi. Ennfremur var spurt hvern lesendur vildu helst sjá á þingi.

Alls tóku tæplega 6.000 manns þátt. Vandlega var farið yfir IP-tölur notenda m.t.t. þess hvort reynt væri að kjósa oft frá sömu IP-tölu. Upp komu tilvik þar sem reynt var að senda inn nokkra tugi atkvæða frá sömu IP-tölu á sama tíma og var þeim atkvæðum eytt.

Hægt var að velja einn þingmann úr hverjum flokki og eru niðurstöðurnar eftirfarandi:

Kristinn H. Gunnarsson ber höfuð og herðar yfir aðra þingmenn flokksins fær 872 atkvæði, að teknu tilliti til svokallaðs IP-frádráttar eða rúmlega 15%

Sá sem næstur kemur, Guðni Ágústsson , fær 224 atkvæði eða fjórðung af atkvæðamagni Kristins

Davíð Oddsson er efstur, fær 511 atkvæði eða tæplega 9%.

Fast á hæla honum fylgja Gunnar Birgisson með 496 atkvæði og nýi liðsmaðurinn í flokknum, Gunnar Örlygsson sem fékk 490 atkvæði. Það má velta því fyrir sér hvort Gunnarr Örlygsson hafi fengið hluta þessara atkvæða út á gagnrýni á Sjálfstæðisflokkinn sem hann tilheyrir nú, en kosningin hófst áður en Gunnar Örlygsson hafði vistaskipti.

Formaðurinn, Guðjón Arnar Kristjánsson leiðir þar með 489 atkvæði eða 8,5%.

Varaformaðurinn Magnús Þór Hafsteinsson hlaut 430 atkvæði og Sigurjón Þórðarson 295 atkvæði.

Þingmenn Frjálslyndra fengu allir tæplega 300 atkvæði eða fleiri.

Ágúst Ólafur Ágústsson, nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar skákar fráfarandi formanni í flokknum. Ágúst Ólafur hlaut 614 atkvæði eða rúmlega 10,5% og fær þau án efa út á framgöngu sína í svokölluðu fyrningarmáli, sem gekk út á afnám fyrningarfrests kynferðisbrota.

Össur Skarphéðinsson fékk hins vegar aðeins 463 atkvæði eða 75% af því atkvæðamagni sem nýr varaformaður hlaut.

Formaður VG stóð sig klárlega best allra þingmanna í vetur að mati lesenda Vísis. Steingrímur J. Sigfússon fékk hvorki meira né minna en 1.412 atkvæði eða tæpan fjórðung atkvæða. Sá sem næstur honum kemur í VG er Ögmundur Jónasson með 398 atkvæði eða tæpan þriðjung af atkvæðamagni formannsins.

Allir fengu þingmenn VG 100 atkvæði eða fleiri.

Steingrímur J. Sigfússon hefur því staðið sig best allra þingmanna á nýafstöðnu þingi að mati lesenda Vísis, það er óumdeilt.

– Næstur honum kemur Kristinn H. Gunnarsson

– Þriðji í kosningunni varð Ágúst Ólafur Ágústsson Samfylkingunni

– Í fjórða sæti kemur svo Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins

– Og fimmti í kosningunni varð Gunnar Birgisson Sjálfstæðisflokki.

– Sjálfstæðismenn eiga fjóra á topp 10 listanum

– Frjálslyndir eiga tvo á topp 10 listanum

– Samfylking á líka tvo topp 10 listanum

– Framsóknarflokkur á einn topp 10 listanum

– VG á einn á topp 10 listanum og toppmanninn sjálfan

Þegar spurt var um hvern lesendur Vísis vildu helst sjá á þingi voru tvær konur efstar.

– Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fékk langflest atkvæði þar eða 307

– Ásdís Halla Bragadóttir fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ og núverandi forstjóri BYKO kom næst með 73 atkvæði.

– Þáttastjórnandinn Egill Helgason á erindi á þing að mati lesenda Vísis, hlaut 56 atkvæði í þriðja sætið

– Árni Johnsen fyrrverandi þingmaður á einhverju ólokið á þingi að mati almennings, hann hlaut 53 atkvæði og lendir í fjórða sæti.

Annars voru tæplega 600 manns nefndir til sögunnar, stjórnmálamenn, blaðamenn, myndlistarmenn, læknar, lögfræðingar, skemmtikraftar, íþróttamenn, verkalýðsforingjar, fígúruru eins og Hómer Simspson og loks nefndi einn "aðeins heiðarlega menn og ólygna".

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“