Viðskiptaráðuneytið neitar að gefa svör við eftirfarandi spurningum alþingismannsins Ólínu Þorvarðardóttur um skuldir sjávarútvegsins, sjá pistil Ólínu um málið hér:
1. Hve mikið af skuldum útgerðarfyrirtækja varð eftir í þrotabúum gömlu bankanna þriggja, sundurliðað eftir bönkum?
2. Hve stór hluti skulda útgerðarfyrirtækja fluttist yfir í nýju bankana þrjá, sundurliðað eftir bönkum?
3. Hvaða verklagsreglur voru viðhafðar við mat á yfirfærslu skulda sjávarútvegsfyrirtækja úr gömlu bönkunum í þá nýju?
4. Hafa lán sjávarútvegsfyrirtækja verið afskrifuð eftir bankahrunið og ef svo er, í hve miklum mæli?
5. Hafa lán sjávarútvegsfyrirtækja verið fryst eftir bankahrunið og ef svo er, hvaða upphæðir er um að ræða og til hve langs tíma?