
Árni Snævarr vinur minn rifjar upp þegar hann var rekinn frá Stöð 2 fyrir að flytja fréttir af laxveiðum Geirs Haarde, þá fjármálaráðherra, í boði Kaupþings.
Það er rétt hjá Árna að það er fagnaðarefni að fá Kristin Hrafnsson til starfa á RÚV. Kristinn er afar öflugur blaðamaður, óhræddur og réttsýnn.
Mikill atgervisflótti hefur verið úr blaðamannastéttinni. Margir hafa farið til annarra starfa – sorglegast er að sjá þá fara út í almannatengsl.
Og þeir sem eitthvað geta og þora eiga oft erfitt uppdráttar.
Árni sjálfur þyrfti reyndar að koma aftur, þótt ég viti að honum líður ágætlega í starfi sínum hjá Sameinuðu þjóðunum.