Ég borða ekki mikið á veitingahúsum núorðið.
En síðasta sumar eyddi ég kvöldi á Friðriki V á Akureyri.
Það var að öllu leyti frábært. Ég var viss um það eftir þetta kvöld að þetta væri besti staður á Ísland.
Mestallur maturinn var eldaður úr íslenskum hráefnum, flest var úr Eyjafirði eða nærsveitum. Þetta er það sem má kalla nýja íslenska eldhúsið.
Þjónustan var framúrskarandi, Friðrik sjálfur er mælskur og skemmtilegur hugsjónamaður sem hefur gaman af því að tala við gesti sína.
Húsakynnin, sem eru gömul kjötvinnsla KEA í Gilinu, eru einstaklega falleg.
Maður er hálf sorgmæddur að lesa að svona frábær staður sé að loka.
En Akureyringar geta þá kannski huggað sig við að KFC mun vera á leið norður.