fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
FókusKynning

Litagleði: Fagmennska í stórum og smáum verkum

Kynning

Málningarvinna, háþrýstiþvottur ásamt sprungu- og steypuviðgerðir

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 23. apríl 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Litagleði er afar öflugt alhliða málningarþjónustufyrirtæki sem hefur starfað frá árinu 1996 og fagnar því tvítugsafmæli á þessu ári. Að sögn eigandans, Kristjáns Aðalsteinssonar, eru verkefni þeirra allt frá baðherbergjum í einkaíbúðum upp í utanhússverkefni á borð við verslunarmiðstöðina Kringluna. Starfsmannafjöldi fyrirtækisins er misstór eftir árstíðum en nú fer brátt í hönd annasamasti tíminn, sumarið.

Litagleði hefur yfir að ráða þremur körfubílum sem koma sér vel við mörg stærri verkefni þar sem vinna þarf í mikilli hæð. Sem dæmi er fyrirtækið núna að vinna við hús að Klapparstíg 1, sem er 12 hæða. Húsið tilheyrir hinum svokallaða Völundarhússreit en Litagleði hefur unnið að málun þessara húsa undanfarin fjögur ár. Körfubílarnir eru í stanslausri notkun yfir sumartímann.

Litagleði sinnir auk þess ýmsum smærri verkum, til dæmis málun einbýlishúsa og annars íbúðarhúsnæðis. Eru gerð bindandi verðtilboð í verk eftir skoðun og uppmælingu.

Fólk er að verða djarfara í litavali

Appelsínugula húsið komið aftur í upprunalega litinn.
Appelsínugula húsið komið aftur í upprunalega litinn.

Um þessar mundir er nafn fyrirtækisins Litagleði sérlega viðeigandi því mjög hefur borið á aukinni litagleði viðskiptavina. Er það sama saga og aðrir í bransanum hafa að segja, að fólk er að verða djarfara í litavali. Kristján bendir á að þetta gangi allt í hringi, litirnir séu í raun að koma aftur, og nefnir sem dæmi hús að Kleifarvegi sem Litagleði málaði, en húsið er afar fallega appelsínugult. Liturinn er hins vegar upprunalegur og Kristján uppgötvaði hann undir málningarlögum.

Litagleði leggur þunga áherslu á ýtrustu fagmennsku við verk sín og býr að áratugareynslu en Kristján tók sveinspróf í málaraiðn árið 1988, fékk meistaraskírteini sitt árið 1991 og gekk sama ár í Málarameistarafélagið. Hann stofnaði síðan Litagleði árið 1996 og fyrirtækið hefur vaxið og dafnað síðan. Kristján fékk löggildingu til að bera ábyrgð á verkþáttum við byggingarframkvæmdum, sbr. einnig ákvæði iðnaðarlaga nr. 42/1978, með þeim réttindum og skyldum sem því fylgir samkvæmt lögum.

Auk málningarvinnu býður Litagleði upp á háþrýstiþvott og sprungu- og steypuviðgerðir. Ítarlegar upplýsingar og gott safn af ljósmyndum af verkefnum fyrirtækisins er að finna á heimasíðunni, litagledi.is, og á Facebook-síðu fyrirtækisins.

Litagleði er til húsa að Otrateigi 30, 105 Reykjavík. Hægt er að senda fyrirspurnir á heimasíðunni, litagledi.is, en einnig er gott að hafa samband í síma 893 1955 eða senda tölvupóst á litagledi@litagledi.is

Mynd: © Kristjan Adalsteinsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7