fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
FókusKynning

Sauna.is: Leiðandi í saunavörum á Íslandi

Kynning

„Endurnærandi fyrir líkama og sál nútímamannsins“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 27. apríl 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Sauna.is hefur frá upphafi sérhæft sig í uppsetningu, sölu og þjónustu á TYLÖ sauna- og gufuklefum. Starfsemi fyrirtækisins hefur snúist um að þjónusta sundlaugar, líkamsræktarstöðvar, hótel/gistihús og heimili.
Páll S. Kristjánsson framkvæmdastjóri segir að Sauna.is hafi tekið við TYLÖ umboðinu af Vatnsvirkjanum sem hafði þjónustað TYLÖ saunavörur í yfir 40 ár með góðum árangri:

„Uppsöfnuð reynsla og sérþekking meðal starfsmanna fyrirtækisins er mikil enda hefur Sauna.is unnið að uppsetningu og þjónustu sauna- og gufuklefa í mörgum byggingum og fyrirtækjum landsins,“ segir Páll. „Sauna.is er því alhliða þjónustufyrirtæki sem selur, setur upp og veitir lausnir á þessu sviði. Við bjóðum viðskiptavinum okkar einnig þjónustu við ráðgjöf og eftirlit með sauna- og gufuböðum.“

Endurnærandi fyrir líkama og sál

„Það er vitað að hófleg notkun saunu og gufubaða er talin mjög heilsusamleg,“ segir Páll. „Þau hafa bæði almennt góð áhrif á blóðrásina og auka vellíðunarkennd vegna streitulosandi áhrifa. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á samhengi á milli mikillar streitu og aukinnar tíðni kransæðasjúkdóma. Góð stund í sauna- eða gufuklefa getur reynst endurnærandi fyrir líkama og sál nútímamannsins, þar sem hann nýtur kyrrðar og slökunar til hins ítrasta,“ segir Páll.

Nútímalausnir í gufu- og saunaklefum

Sauna.is selur allar gerðir af saunaklefum þ.e. blautgufu, mildgufu og þurrgufu. Að auki eru á boðstólum ýmiss konar ilmolíur, fylgi- og aukahlutir og vefnaðarvörur. Páll hvetur fólk til þess að kynna sér vöruúrvalið á heimasíðu Sauna.is eða líta við í heimsókn í verslunina á Smiðjuvegi 11.

Sauna.is/Tækjatækni ehf.
Smiðjuvegi 11
200 Kópavogur
Símar: 571-3770 og 860-4460
Netfang: www.sauna@sauna.is
Heimasíða:www.sauna.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
02.09.2025

Frábær fjölskyldustemning á Kjúklingafestivali í Mosfellsbæ

Frábær fjölskyldustemning á Kjúklingafestivali í Mosfellsbæ
Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
29.01.2025

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu

Fyrirtækjaþjónusta IKEA – fagleg ráðgjöf þér að kostnaðarlausu
Kynning
23.01.2025

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn