fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 4. júní 2026 13:26

Samkvæmt kvörtuninni urðu trúnaðarbrestir í hinni óþekktu sveitarstjórn í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í maí. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmanni Alþingis barst 7. maí síðastliðinn, níu dögum fyrir sveitarstjórnarkosningar, kvörtun frá ónefndum aðila vegna trúnaðarbrests innan sveitarstjórnar, í ónefndu sveitarfélagi, í aðdraganda kosninganna.

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi til viðkomandi sem sent var 27. maí, að loknum kosningunum. Nafn viðkomandi sveitarfélags hefur verið afmáð úr opinberri útgáfu bréfsins. Í því kemur fram að kvörtunin lúti nánar tiltekið að meðferð sveitarfélagsins á kvörtun viðkomandi vegna meintra trúnaðarbresta innan sveitarstjórnar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Kvörtunin lúti einnig að því að ekkert sjálfstætt úrræði sé til staðar innan stjórnsýslu sveitarfélagsins þegar kvartanir beinist að kjörnum fulltrúum eða aðilum tengdum sveitarstjórn. Hvers eðlis þessir meintu trúnaðarbrestir voru kemur ekki fram.

Umboðsmaður segir það hins vegar ekki hægt að kvarta til embættisins, ef skjóta megi máli til æðra stjórnvalds, fyrr en stjórnvaldið hafi fellt úrskurð sinn í málinu. Þetta ákvæði sé einkum byggt á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega séu rangar, áður en leitað sé til aðila utan stjórnkerfis þeirra, sem umboðsmaður Alþingis sé, með kvörtun.

Bendir umboðmaður kvartandanum á að samkvæmt lögum fari innviðaráðherra með eftirlit með því að sveitarfélög gegni skyldum sínum samkvæmt sveitarstjórnarlögum og öðrum löglegum fyrirmælum. Í því ljósi telur umboðsmaður að kvartandinn eigi fyrst að beina kvörtun sinni til innviðaráðuneytisins. Telji viðkomandi sig enn beittan órétti eftir að ráðuneytið hafi tekið afstöðu til málsins geti hann á ný leitað til umboðsmanns.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Íslendingar ættu að vera sérlega stoltir af körfuboltalandsliðinu

Segir að Íslendingar ættu að vera sérlega stoltir af körfuboltalandsliðinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómari segir að Barbara hefði þurft að selja blíðu sína 12 manns til að fullyrðing Margrétar stæðist

Dómari segir að Barbara hefði þurft að selja blíðu sína 12 manns til að fullyrðing Margrétar stæðist
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara

Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Safnað fyrir fjölskyldu Ingu Daggar sem lést í kajakslysi – „Stuðningur núna getur skipt miklu fyrir framtíð drengjanna“

Safnað fyrir fjölskyldu Ingu Daggar sem lést í kajakslysi – „Stuðningur núna getur skipt miklu fyrir framtíð drengjanna“