
Wayne Rooney telur að Chelsea geti orðið alvöru ógn í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili þrátt fyrir vonbrigðatímabil í ár.
Chelsea endaði í 10. sæti og missti af Evrópusæti eftir 2-1 tap gegn Sunderland í lokaleik tímabilsins. Xabi Alonso tekur nú við sem stjóri liðsins.
Rooney segir að það geti reynst Chelsea vel að vera ekki í Evrópukeppni á næsta tímabili og að þá muni nýi maðurinn í brúnni hafa góð áhrif.
„Ég held að þeir verði mikil ógn. Alonso fær meiri tíma á æfingasvæðinu og það getur hjálpað liðinu mikið,“ segir Rooney meðal annars.