
Þó nokkrir hafa verið orðaðir Liverpool til að fylla skarð Mohamed Salah, sem lék sinn síðasta leik fyrir félagið í gær og er að kveðja eftir ótrúleg níu ár.
Í spænska miðlinum El Nacional kemur nýtt nafn fram í þessum efnum í dag, en það er Nico Williams hjá Athletic Bilbao.

Williams, sem er 23 ára gamall, er þar sagður efstur á lista Liverpool. Kantmaðurinn hefur skorað sex mörk og lagt upp þrjú í 25 deildarleikjum á tímabilinu og hefur lengi verið eftirsóttur af stærri liðum.
Samkvæmt fréttinni er Athletic Bilbao tilbúið að selja hann í sumar fyrir rétt verð þrátt fyrir að hann hafi nýlega skrifað undir nýjan samning við félagið.