

Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður og skákmeistari, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikuna.
KR-ingar hafa farið vel af stað í Bestu deildinni og telur Björn að liðið geti haldið í við Víking, lengi vel hið minnsta. Taka skal fram að þátturinn var tekinn upp fyrir 8. umferð Bestu deildarinnar.
„Ég ætla alls ekki að útiloka það. Þetta kemur mér svolítið á óvart því það var allt í skrúfunni þarna á síðasta tímabili. Það er frábært hjá Óskari að hafa haldið áfram með sína hugmyndafræði og svo er þetta að springa út núna,“ sagði hann.
„Eins og er þá er þetta tveggja hesta hlaup. En ég held að hópurinn hjá KR sé aðeins of þunnur. Þeir eru ótrúlega góðir þessir 16 ára gaurar í byrjunarliðinu en það eru líka tveir 16 ára gaurar í byrjunarliðinu, það er ákveðið viðvörunarmerki,“ sagði Tómas.
Væru þeir til í að sjá KR-liðið styrkt í sumarglugganum.
„Maður vonar að velunnarar í Vesturænum séu farnir að kaupa verkefnið og setja pening í þetta í glugganum. Ég held það sjái allir að það sé eitthvað sérstakt að fara að eiga sér stað þarna,“ sagði Björn og Tómas tók undir.
„Og ég treysti Óskari alveg vel í að velja þá leikmenn rétt.“
Nánar í spilaranum.