
Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður og skákmeistari, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikuna.
Arsenal varð á dögunum Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár og spretta stuðningsmenn liðsins upp hér og þar, til að mynda á samfélagsmiðlum.
„Það er gaman að sjá alls konar gaura sem hafa ekki sett í Instagram-story í sjö ár. Þeir voru allt í einu búnir að setja myndina í story. Ég vissi ekki að þessir gaurar kynnu á síma,“ sagði Tómas og hló.
Björn kannaðist við þetta. „Menn eru búnir að vera smá í felum.“
Nánar í spilaranum.