

Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður og skákmeistari, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikuna.
Björn er mikill stuðningsmaður Arsenal og það er sonur hans einnig. Tímabilið var ekki alltaf dans á rósum en endaði auðvitað vel, þar sem Arsenal tryggði sér Englandsmeistarartitilinn á dögunum.
„Sonur minn er rosalegur Arsenal-aðdáandi, keyrir þetta eiginlega áfram í fjölskyldunni. Og á fermingardaginn var úrslitaleikur deildabikarsins gegn City. Það var kirkjan, svo heim í leik. Það var helvítis högg að tapa þeim leik.
Svo var fermingarferðin Arsenal-Bournemouth. Við fórum þangað út feðgarnir og þar kom annað högg í andlitið, 1-2 tap. Það voru allir bugaðir. Það er rosalegt að vera í 60 þúsund manna hópi af þunglyndissjúklingum að reyna að komast í lestina.“
Í næsta leik mætti Arsenal svo City, tapaði en komst svo aftur á skrið og landaði titlinum. Frammistaðan gegn City heillaði Björn.
„Þarna var uppgjörið við City yfirvofandi og ég hélt að þetta væri búið. En svo leið mér betur eftir City-leikinn.“
Nánar í spilaranum.