
Thierry Henry segir miðjumanninn Manu Kone geta orðið óvænta stjörnu og lykilmann fyrir Frakkland á HM í sumar.
Didier Deschamps tilkynnti nýverið 26 manna hóp Frakka fyrir mótið og þar fékk Kone sæti, en miðjumaðurinn hefur farið nokkuð undir radarinn þrátt fyrir gott tímabil með Roma á Ítalíu.
„Fólk talar mikið um Dembele, Doue, Barcola, Saliba og Konate, en ekki mikið um Manu Kone. Að mínu mati er hann einn besti varnartengiliður heims um þessar mundir,“ segir Henry.

Henry þjálfaði Kone er hann var með Ólympíulið Frakka sem vann silfur á leikunum í París og segir hann vera leikmann sem gefi allt fyrir liðið.
„Hann er svona týpa sem stuðningsmenn elska. Hann minnir mig svolítið á Dirk Kuyt hjá Liverpool. Kannski ekki stærsta stjarnan, en hann gerir allt fyrir liðið.“
Kone, sem er 24 ára gamall, hefur spilað 36 leiki fyrir Roma á tímabilinu og leikið tólf landsleiki fyrir Frakkland.