
Samkvæmt heimildum DV er ríkur vilji innan framboðsins, Ö-listinn – Betri Sveit, til sveitarstjórnarkosninganna í Grímsnes- og Grafningshreppi, sem og meðal íbúa á svæðinu, að fjölmiðlamaðurinn Heimir Karlsson verði sveitarstjóri að loknum kosningum.
Heimir er á lista framboðsins en ekki í baráttusæti, hann skipar sjöunda sætið á listanum. Auk Betri sveitar er A-listinn í framboði.
Oddviti Betri sveitar er Anders Bertelsen. Ekki náðist samband við hann við vinnslu fréttarinnar en Ragna Ívarsdóttir, sem skipar annað sætið á listanum, segir að orðrómur um þetta sé mjög sterkur. Annað vildi hún ekki láta hafa eftir sér um málið.
DV náði sambandi við Heimi sjálfan sem sagði: „Jú, það hefur verið orðað við mig hvort ég hefði mögulega áhuga á þessu, bæði af hálfu þeirra sem innan framboðsins eru og fólks í sveitinni, en ég vil bara segja það á þessu stigi að það er ekkert ráðið í þessum efnum. Ég held að það sé bara best að bíða eftir því hvað kemur upp úr kjörkössunum. Ef Betri sveit kemur vel úr úr þessum kosningum þá setjast þau bara niður og velta fyrir sér öllum möguleikum í stöðunni. En það er engin ákvörðun tekin á þessu stigi.“
Heimir kannast við að ríkur vilji sé innan framboðsins um þessa ráðstöfun en segir að ekkert sé fast í hendi hvað þetta varðar.
„Ég vil bara ekkert hugsa um þetta fyrr en við sjáum hvað kemur upp úr kjörkössunum,“ segir hann og bætir við:
„Mér er sýndur mikill heiður með því að vera orðaður við þetta embætti og ég vil þakka fyrir það.“